Bendtner þarf að léttast til að fá að spila með Juve Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2012 16:30 Nicklas Bendtner. Mynd/AFP
Danski framherjinn Nicklas Bendtner er kominn til ítalska félagsins Juventus en það er ekki öruggt að hann fái að spila með liðinu strax. Danska blaðið Tipsbladet hefur heimildir fyrir því að hann fá ekki að spila með ítölsku meisturunum fyrr en hann létti sig. Bendtner, sem er 24 ára gamall, var að leita sér að nýju félagi í allt sumar. Það var strax ljóst að hann yrði seldur eða lánaður frá Arsenal og því var Daninn ekki með í undirbúningi Arsenal-manna fyrir tímabilið. Bendtner gerði eins árs lánsamning við Juventus en þarf að fara í gegnum stífar æfingar og strangt matarræði áður en hann fær að hlaupa inn á völlinn í búningi Juve. Juventus byrjar á því að gefa honum tvær vikur til þess að komast í alvöru form en svo verður að koma í ljós hvernig gengur. Bendtner hefur reyndar þegar orðið fyrir barðinu á gagnrýnendum á Ítalíu enda voru margir að búast við sterkari leikmanni sem gæti gert liðið enn betra. Það efast spekingar um að Bendtner hafi burði í að gera. Juve var á eftir mönnum eins og Robin van Persie (Manchester United), Edinson Cavani (Napoli), Stevan Jovetic (Fiorentina), Edin Dzeko (Manchester City) eða Fernando Llorente (Bilbao) en varð að sætta sig við danska landsliðsframherjann. Það þótti sumum ekki alltof góð tíðindi nú þegar liðið snýr aftur í Meistaradeild Evrópu.
Ítalski boltinn Mest lesið Shearer ósáttur við Isak: „Þú getur ekki gert þetta“ Enski boltinn Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Sjáðu hjólhestaspyrnu Richarlisons, markasúpu City og öll hin Fótbolti Nýja stjarnan í þungavigtinni rotaði Whyte á innan við tveimur mínútum Sport Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Forest kaupir tvo úr Evrópumeistaraliði Englands Enski boltinn Aðlögunar krafist eftir U-beygju Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Fyrsti risaleikur tímabilsins Sport Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Hafði ekki keppt í 376 daga en náði samt besta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Í beinni: Chelsea - Crystal Palace | Heimsmeistararnir mæta til leiks Eze og Guehi byrja hjá Palace þrátt fyrir óvissuna Shearer ósáttur við Isak: „Þú getur ekki gert þetta“ Forest kaupir tvo úr Evrópumeistaraliði Englands Aðlögunar krafist eftir U-beygju Sjáðu hjólhestaspyrnu Richarlisons, markasúpu City og öll hin Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn „Hörku barátta tveggja góðra liða“ „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ „Ætluðum ekki heim án sigurs“ „Loksins, tilfinningin er geggjuð“ Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Arnór og Ari skoruðu er Norrköping hafði betur í Íslendingaslag Öruggur sigur Börsunga gegn níu heimamönnum Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Daníel Tristan skoraði í stórsigri Ísak skoraði enn eitt markið fyrir Lyngby Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Fáar spilað leik á þessum velli Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum Sjá meira