Metan er 43% ódýrara en bensín 19. september 2012 16:24
Rúmlega þúsund metanbílar eru í umferðinni í dag og fer þeim fjölgandi ár frá ári. "Árið í fyrra var metár og það verður spennandi að sjá hvort það verði toppað í ár," segir Magnús Ninni Reykdalsson, verkefnisstjóri metanmála hjá Metanbill.is. Þar er gömlum og nýjum bensínbílum breytt í metanbíla sem er til hagsbóta jafnt fyrir veskið sem umhverfið. "Við erum mikið í því að breyta nýjum bílum fyrir bílaumboðin en sömuleiðis fyrir einstaklinga. Það getur oft komið betur út enda kemur ríkið til móts við fólk sem ákveður að breyta bíl sínum í formi endurgreiðslu á vörugjöldum, allt að 1.250.000. Metanbreytingin kostar kannski 500.000 og þá er fólk að fá bílinn 750 þúsundum ódýrari," segir Magnús og á það sérstaklega við um dýrari bíla sem eigendur greiða há vörugjöld af. Ef um er að ræða ódýrari bíla kemur breytingin oft út á eitt sökum endurgreiðslunnar. Þeir sem breyta notuðum bílum sem eru yngri en sex ára fá auk þess tuttugu prósent af verði breytingarinnar endurgreidd. En er þá ekki hægt að breyta eldri bílum? "Jú, vissulega. Elstu bílarnir eru frá 1998. Skilyrðið er að þeir séu með OBD-tengi en þau voru að koma þarna á árunum 1998 til 2000 en voru orðin stöðluð í öllum bílum árið 2000. En hvernig fer breytingin fram? "Það eru settir kútar i skottið eða undir bílana. Svo setjum við sérstaka metantölvu í bílinn og sitthvað fleira en breytingin tekur um tíu daga. Þetta er algerlega sjálfstætt kerfi og það eina sem breytist inni í bílnum er lítill takki og mælir sem segir til um hversu mikið er eftir á kútnum. Hægt er að slökkva og kveikja á kerfinu en þegar það er sjálfvirkt fer það í gang á bensíni. Þegar bíllinn er orðinn fjörutíu gráðu heitur, sem tekur yfirleitt tvær til þrjár mínútur, skiptir hann yfir í metan. Lítrinn af bensíni kostar um 260 krónur en lítrinn af metani 149 krónur svo sparnaðurinn er umtalsverður. Þá kemur ríkið á móti metanbílaeigendum með því að lækka bifreiðagjöld niður í lægsta flokk eða 11.300 á ári. Það borgar sig sérstaklega fyrir eigendur stærri bíla sem eru að borga í kringum 50 þúsund í bifreiðagjöld ári," segir Magnús. En er framboðið á metani nægjanleg? Já á meðan lífrænn úrgangur fellur til er nóg af metani. Þarna er verið að breyta óumhverfisvænu efni í umhverfisvænt og því mikill ávinningur fyrir umhverfið. Auðvitað þarf að beisla þessa orku og það kostar peninga en miklar þreifingar hafa verið með að opna metanver þar sem metan yrði framleitt og er sú hugmynd að verða komin á framkvæmdaplan. Við hjá Metanbil.is erum því jákvæð hvað framtíðina varðar. En hvernig er aðgengi að metani? "N1 er sem stendur eina olíufélagið sem selur metangas. Hægt er að fylla á kútana hjá N1 í Tinhellu og N1 í Ártúnsbrekku en þar hefur verið ákveðið að fjölga um einn staur þar sem stundum hefur myndast röð við metandælurnar og mun það verða mikill munur fyrir metanbílaeigendur. Þá styttist í að fleiri aðilar fari að selja metangas."
Mest lesið Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Viðskipti innlent Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent Sýn tapaði 239 milljónum Viðskipti innlent „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Verða ekki Framúrskarandi nema uppfylla lög um kynjahlutfall Framúrskarandi fyrirtæki Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Fleiri fréttir Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Bauhaus styrkir góð málefni fyrir jólin „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Sjá meira