Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Terra 25. ágúst 2026 09:07 „Við erum að stíga þetta skref til að auka þjónustuna við viðskiptavini sem eru ekki að leigja hjá okkur ílát heldur vilja einfaldlega geta komið sjálfir með úrganginn,“ segir Gísli Þór Arnarson, framkvæmdastjóri þjónustu hjá Terra. Fyrirtæki sem þurfa að losa sig við úrgang hafa nú fengið nýjan valkost á höfuðborgarsvæðinu. Terra hefur opnað nýja móttökustöð að Berghellu 1 í Hafnarfirði þar sem fyrirtæki geta komið sjálf með úrgang til flokkunar og losunar. Markmiðið er einfalt: Minni biðtími, einfaldari verðlagning og sanngjarnara verð. „
Stóra málið er að vekja athygli á því að þessi möguleiki er nú fyrir hendi. Hingað til hefur fyrirtækjum svolítið verið stýrt á móttökustöðvar Sorpu en nú er kominn nýr valkostur með annarri verðlagningu,“ segir Gísli Þór Arnarson, framkvæmdastjóri þjónustu hjá Terra. Greitt fyrir það sem raunverulega er losað Nýja móttökustöðin var opnuð í júní og segir Gísli að hugmyndin hafi meðal annars kviknað í kjölfar ákalls frá fyrirtækjum um fleiri valkosti þegar kemur að losun úrgangs. Terra ákvað jafnframt að fara aðra leið í verðlagningu en fyrirtæki hafa víða átt að venjast. Í stað þess að magn úrgangsins sé metið út frá rúmmáli er bíllinn vigtaður þegar hann kemur inn á svæðið og aftur þegar hann fer. „Starfsmaður aðstoðar þig og leiðbeinir um í hvaða flokk úrgangurinn fer. Að ferlinu loknu er annaðhvort greitt á staðnum eða losunin skráð í reikningsviðskipti fyrirtækisins.“ Þannig borga fyrirtæki fyrir hvert kíló samkvæmt gjaldskrá. „Við erum með mjög einfalda verðskrá og höfum lagt áherslu á að gera þetta eins einfalt og hægt er fyrir fyrirtækin.“ Að sögn Gísla getur þetta skipt verulegu máli, enda getur verið erfitt að meta magn úrgangs nákvæmlega út frá rúmmáli. Með vigtuninni liggur hins vegar nákvæmlega fyrir hversu mörg kíló voru losuð. „Þetta er ódýrara, biðtíminn er minni og verðlagningin sanngjarnari. Í stað þess að meta einhverja rúmmetra er einfaldlega horft á raunþyngdina í kílóum.“ Hugsað fyrir minni fyrirtæki og verktaka Þjónustan getur nýst fjölbreyttum hópi fyrirtækja en Gísli segir Terra meðal annars horfa til minni verktaka og fyrirtækja sem þurfa reglulega að losa úrgang en eru ekki með eigin ílát eða gáma í fastri þjónustu. Þetta er ódýrara, biðtíminn er minni og verðlagningin sanngjarnari. Stærri fyrirtæki eru gjarnan með gáma eða ílát á starfsstöðvum sínum sem Terra eða aðrir þjónustuaðilar tæma reglulega. Öðru máli gegnir um minni fyrirtæki þar sem úrgangurinn endar oft einfaldlega í sendibílnum eða á pallbílnum og starfsmaður þarf síðan að koma honum á móttökustöð. „Við erum fyrst og fremst að höfða til þeirra sem eru með úrganginn í bílnum sínum og þurfa sjálfir að fara og losa hann. Þetta geta verið minni verktakar, heildsalar og aðilar á sendibílum sem eru að fara út um allt og safna úrgangi hjá fyrirtækjum.“ Nýja stöðin gefur þessum hópi því kost á að aka beint í Berghellu og losa farminn þar. Terra hefur opnað nýja móttökustöð að Berghellu 1 í Hafnarfirði. Þar geta fyrirtæki komið sjálf með úrgang til flokkunar og losunar. Tekið á móti flestum algengum úrgangsflokkum Tekið er á móti fjölbreyttum úrgangi í Berghellu, meðal annars bylgjupappa, pappír og pappa, plastumbúðum, heyrúlluplasti, frauðplasti, hreinu og lituðu timbri, málmum, hjólbörðum, flísum, postulíni og gleri. Einnig er tekið á móti blönduðum rekstrarúrgangi og grófum úrgangi. „Þetta eru í raun nánast allir helstu flokkar sem fyrirtæki þurfa að losa sig við. Við tökum ekki á móti garðúrgangi og jarðvegi, en tökum til dæmis á móti grófum úrgangi, timbri, plasti og pappa og þessum helstu grunnflokkum.“ Einnig er hægt að koma með spilliefni á móttökustöð Terra. „Starfsmaður er á svæðinu og aðstoðar við flokkun ef þörf krefur. Því þarf enginn að óttast að mæta með fullan sendibíl og standa síðan ráðalaus yfir því í hvaða gám allt saman á að fara,“ segir Gísli. Nýr valkostur á markaðnum Gísli segir opnun stöðvarinnar lið í því að auka þjónustu Terra við fyrirtæki sem vilja sjálf sjá um að koma úrgangi til losunar. „Við erum að stíga þetta skref til að auka þjónustuna við viðskiptavini sem eru ekki að leigja hjá okkur ílát heldur vilja einfaldlega geta komið sjálfir með úrganginn.“ Starfsmaður er á svæðinu og aðstoðar við flokkun ef þörf krefur. Hann segir mikilvægt að fyrirtæki viti af þessum nýja möguleika, enda sé hugmyndin að bjóða raunhæfan og hagkvæman valkost fyrir fyrirtæki sem hingað til hafa haft fáa kosti þegar kemur að því að losa úrgang með þessum hætti. „Við höfum skoðað verðlagninguna vel og viljum ekki gera þetta flókið eða dýrt. Þetta þarf að vera ódýrara og sanngjarnara og biðtíminn minni. Það er í raun kjarninn í þessu.“ Móttökustöð Terra er að Berghellu 1 í Hafnarfirði og er opin virka daga frá klukkan 8 til 17.
Sorphirða Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira