Högnuðust um hálfan annan milljarð Agnar Már Másson skrifar 24. ágúst 2026 16:56 Guðni Aðalsteinsson er forstjóri Reita. Reitir högnuðust um 1.567 milljónir króna á fyrri helmingi 2026. Þar af jukust leigutekjur um tólf prósent. Félagið gerir ráð fyrir því að tekjur í lok árs verði á milli nítján og tuttugu milljarða króna.
Reitir birtu í dag uppgjör sitt fyrir fyrri árshelming 2026. Þar segir að leigutekjur árshlutans hafi numið 9.884 milljónum króna sem sé 12,7 prósenta aukning milli ára, eða sem nemur 7,4% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu hafi numið 6.593 milljónum króna og aukist um 16,2 prósent, en matsbreyting er þegar bókfært verð fastafjármuna í ársreikningi er hækkað til markaðsverðs vegna þess að markaðsverð fastafjármuna er talið verulega hærra en bókfært verð þeirra af ástæðum sem taldar eru varanlegar. Heildarhagnaður var um 1.567 milljónir króna. Þá er gert ráð fyrir því að í lok árs verði tekjur á bilinu 19.800-20.100 milljónir króna og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu á bilinu 13.200-13.500 milljónir króna. Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri árshelmingi hafi þá numið 3.895 milljónum króna, heildareignir samstæðunnar voru 268.847 milljónir og eigið fé 77.238 milljónir í lok júní 2026. Greint er frá því í uppgjörinu að innri vöxtur félagsins í uppbyggingar- og þróunarverkefnum sé 5,4 milljarðar króna á fyrri hluta 2026. Stærstu verkefnin séu uppbygging á Hyatt hóteli við Laugaveg, umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg í hjúkrunarheimili og nýframkvæmdir á Korputúni. Góður framgangur sé í öllum verkefnum félagsins og dreifast þau vel eftir tegund húsnæðis og eru þar á meðal hótel, atvinnurými, íbúðir og hjúkrunarheimili. Nýr leigusamningur við Dranga um 5.500 fm verslunarrými á Korputúni markaði lykiláfanga í þróun svæðisins sem er meðal umfangsmestu uppbyggingarverkefna félagsins.
Reitir fasteignafélag Fasteignamarkaður Leigumarkaður Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira