Birgir Leifur í erfiðri stöðu á Ítalíu 26. september 2012 14:42 Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, náði sér ekki á strik á öðrum keppnisdegi af alls fjórum á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í dag. Birgir lék á 74 höggum eða 3 höggum yfir pari en hann er samtals á 2 höggum yfir pari. Mótið sem fram fer á Ítalíu er hluti af fyrsta stigi úrtökumótsins en alls eru stigin þrjú. Birgir er þessa stundina í 43. sæti en að öllum líkindum komast 27 efstu kylfingarnir áfram af þessum velli. Birgir hóf leik í morgun á 10. teig. Hann byrjaði með látum og var -2 eftir fyrri 9 holurnar þar sem hann fékk fugl (-1) á 12. og 15. Hann var því samtals á -3. Hann fékk skolla (+1) á 1., fugl (-1) á 2., en hann fékk skolla (+1) á 6., og 7. braut og skramba (+2) á 8.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira