Hjörtur náði hundraðasta marki sínu í 1. deild í síðustu umferðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2012 08:00 Hjörtur Júlíus Hjartarson. Mynd/Daníel
Hjörtur Júlíus Hjartarson skoraði fyrir Víking Reykjavík í 3-3 jafntefli á móti Vikingi Ólafsvík í lokaumferð 1. deildar karla í gær. Hjörtur var að skora þarna sannkallað tímamótamark því þetta var hundraðasta mark hans í næstefstu deild. Markið dugði Hirti þó ekki til að taka markakóngstitil deildarinnar því markakóngurinn var Guðmundur Steinn Hafsteinsson úr Víkingi Ólafsvík sem skoraði einu marki meira en Hjörtur í sumar. Hjörtur var á sínu níunda tímabili í b-deildinni en þar af hafa fimm þeirra verið frá og með árinu 2007. Hjörtur hefur skorað þessi 100 mörk í 161 leik en hann er síðan líka með 47 mörk í 140 leikjum í efstu deild. Hjörtur lék sína fyrstu leiki í b-deildinni sumarið 1995 þegar hann skoraði 10 mörk í 17 leikjum með Skallagrími. Skallagrímur (52 leikir/38 mörk) er eitt sex liða Hjartar í b-deildinni en hann hefur einnið spilað með Völsungi (18/6), Þrótti (21/18), Selfossi (10/7), ÍA (40/22) og svo Víkingi (20/9) í sumar.Tímabil Hjartar í b-deildinni: 1995 Skallagrímur - 17/10 1996 Völsungur - 18/6 1998 Skallagrímur - 17/10 1999 Skallagrímur - 18/18 2007 Þróttur - 21/18 2009 Selfoss - 10/7 2010 ÍA - 21/7 2011 ÍA - 19/15 2012 Víkingur - 20/9Samtals: 161 leikur/100 mörk
Íslenski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð Sport Annað dauðsfall í CrossFit keppni Sport Yngsti markaskorari efstu deildar: „Langaði í annað“ Íslenski boltinn „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Körfubolti Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Enski boltinn „Við verðum bara að horfast í augu við sannleikann“ Sport Uppgjörið: Valur - ÍA 6-1 | Valsmenn tóku pirringinn út á Skagamönnum Íslenski boltinn Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York Körfubolti Kristian Nökkvi skoraði og lagði upp Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið heldur áfram í Garðabæ Sport Fleiri fréttir Yngsti markaskorari efstu deildar: „Langaði í annað“ Uppgjörið: Valur - ÍA 6-1 | Valsmenn tóku pirringinn út á Skagamönnum Alexander Rafn yngsti markaskorari í sögu efstu deildar Uppgjörið: Stjarnan - Fram 2-0 | Stjörnumenn á beinu brautina Uppgjörið: KR - ÍBV 4-1 | KR-ingar enn eina taplausa liðið Fjölnir fékk ekki minnisblaðið fyrir fyrsta heimaleik Grindvíkinga „Sigur liðsheildarinnar“ Uppgjörið: Vestri-Afturelding 2-0 | Vestramenn aftur á toppinn Helena í ham í Bestu mörkunum: „Mér finnst þetta vera algjört bull“ „Einu skrefi nær því að verða næsti Sir Alex Ferguson“ Fjögur lið á toppnum með fjögur stig Guðni Eiríksson: Markmannstaðan á Íslandi er ekki nógu góð Nýliðarnir sóttu þrjú stig á heimavöll hamingjunnar Uppgjör: FH-Stjarnan 2-1 | FH-konur áfram á flugi Leik KR og ÍBV seinkað vegna færðar Frederik Schram fundinn Flestir treysta sér til þess að spila í Grindavík Uppgjörið: FHL-Þór/KA 2-5 | Sandra María opnaði markareikninginn með þrennu Uppgjörið: Valur-Þróttur 1-3 | Þróttur fylgir Blikum eins og skugginn Uppgjörið: Tindastóll-Breiðablik 1-5 | Berglind aftur í stuði á Króknum Völlurinn í Grindavík metinn öruggur Sýking ógnaði ferli Kristófers: „Algjört kraftaverk að þetta hafi ekki farið verr“ Hetja Breiðabliks lá á gjörgæslu í eina viku: „Þakklátur fyrir heilsuna“ Ingvar gerir ráð fyrir að vera klár í næsta leik Fimm mörk að meðaltali í leik hjá KR Valdi fjórar verstu hornspyrnur ÍBV: „Þessi var helvíti slæm“ Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Sjáðu partýið í Kópavogi, Gylfa afgreiða Fram og nýliðana í stuði „Þetta er eins og eldgamla tómatsósan“ Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Sjá meira