Milljarður snjallsíma seldur árið 2015 11. október 2012 13:51 Milljarður snjallsíma verður seldur árið 2015. mynd/AFP
Bandaríska greiningarfyrirtækið Gartner áætlar að milljarður snjallsíma verði seldur árið 2015 og að 350 milljón spjaldtölvur verði í umferð á þeim tíma. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Gartners frá því í gær. Síðustu ár hefur fyrirtækið fylgst með og rannsakað þróun mála í tæknigeiranum. Samkvæmt Gartner er afar ólíklegt að það muni draga úr vinsældum PC-tölvunnar, sem í dag er vinsælasta raftæki veraldar. Stórsókn snjallsíma og spjaldtölva undanfarið kemur þó til með að hafa áhrif á velgengni borð- og fartölvunnar.Samskiptamiðlar leika stórt hlutverk á uppgangstímum snjallsímans.mynd/APSamskiptamiðlar leika stórt hlutverk á uppgangstímum snjallsímans. Í tilkynningu Gartners kemur fram að aðeins 15 prósent nota snjallsíma til að heimsækja samskiptamiðla á borð til Facebook og Twitter. Þessi tala kemur þó til með að hækka gríðarlega á næstu árum. Vinsældir Facebook og Twitter munu halda áfram að aukast samkvæmt Gartner. Því fer þó fjarri að miðlarnir tveir muni ráða lögum og lofum. Miðlar á borð við Instagram, FourSquare, Path og Mocospace, munu auka markaðshlutdeild sína verulega. Gartner gerir ráð fyrir að um einn milljarður manna muni nota samskiptamiðla með hjálp snjallsíma eða spjaldtölva fyrir árið 2015.
Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira