Fjöldi danskra flugliða segir upp störfum hjá SAS 22. nóvember 2012 06:39
Töluverður fjöldi danskra flugliða hjá SAS flugfélaginu hefur sagt upp störfum sínum eftir að verkalýðsfélag þeirra féllst á kjaraskerðingar í upphafi vikunnar. Fjallað er um málið í börsen en þar segir að á síðustu þremur dögum hafi 73 danskir flugliðar, það er flugfreyjur og þjónar, sagt upp störfum sínum hjá SAS. Þar að auki búast forráðamenn verkalýðsfélags þeirra við að þessum uppsögnum fari fjölgandi í náinni framtíð. Börsen ræðir við Jean Pierre Schomburg varaformann verkalýðsfélagsins um þessar uppsagnir. Hann segir að þeir tæplega 1.400 flugliðar sem tilheyra félaginu muni lenda í miklum erfiðleikum með að stemma af persónulegt líf sitt og starfið. Þar á hann við að í samkomulaginu, fyrir utan launalækkanir, var samþykkt að auka virkan vinnutíma flugliðanna úr 42 tímum á viku upp í 47,5 tíma, gera það mögulegt að flugliðar vinni allt 13 tíma á dag og hækka ellilífeyrisaldurinn úr 60 árum og í 65 ár. Schomburg segir að dönsku flugliðanir hafi blendnar tilfinningar í garð SAS. Þeir eru ánægðir með að flugfélagið lifi af hremmingar sínar. En þeir eru ósáttir við að félagið þvingaði þá til að taka á sig kjaraskerðingarnar.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira