Messi vann einvígið við Falcao Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 16. desember 2012 00:01 Fyrirgefið, ég er svona góður. Mynd/NordicPhotos/Getty
Barcelona sigraði Atletico Madrid 4-1 í toppslag spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Falcao skoraði fyrsta mark leiksins en Messi skoraði tvö mörk í seinni hálfleik eftir að samherjar hans höfðu komið liðinu yfir fyrir hálfleik, 2-1. Falcao gerði sitt strax á 31. mínútu þar sem hann stakk vörn Barcelona af áður en hann vippaði boltanum yfir Victor Valdes í markinu og Atletico komið yfir. Adriano Correia jafnaði metin fimm mínútum síðar með frábæru skoti með vinstri fæti í slána og inn. Algjört draumamark. Sergio Busquets kom Barcelona yfir rétt fyrir hálfleik þegar hann sýndi mikla yfirvegun í teignum þar sem hann fékk boltann eftir horn. Hann tók sér þann tíma sem þurfti og setti boltann upp í þaknetið af stuttu færi. Þá var komið að þætti Messi. Alexis Sanchez fann Messi rétt utan vítateigs og þrátt fyrir lítið pláss tókst honum að koma boltanum í netið. Messi nýtti sér svo skelfileg varnarmistök á 88. mínútu þar sem hann skoraði 17. mark sitt gegn Atletico og 90. mark sitt á árinu 2012. Barcelona er nú með 9 stiga forystu á toppi deildarinnar. Liðið er með 46 stig í 16 leikjum og með 36 mörk í plús. Atletico er í öðru sæti með 37 stig og Real Madrid kemur þar á eftir með 33 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Fleiri fréttir Átti Henderson að fá rautt spjald? Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Sjá meira