Stórmarkaðir og hótel í Svíþjóð banna sölu á risarækjum 10. desember 2012 06:49
Fjöldi stórmarkaða og hótela í Svíþjóð hafa bannað sölu á risarækjum sem koma úr eldiskvíum í Asíulöndum. Ástæðan fyrir því að þessar risarækjur eru bannaðar eru að framleiðsla þeirra skaðar umhverfið sem og ótti við bakteríur í þeim. Risarækjurnar koma að mestu leyti frá Bangladess, Taílandi og Víetnam. Í frétt um málið í Berlingske Tidende segir að bannað sé að selja þessar rækjur í 700 stórverslunum á vegum Coop sem og 180 verslunum hjá Axfood verslunarkeðjunni. Þá hafa 160 hótel í Scandic hótelkeðjunni í Svíþjóð bannað sölu á þessum rækjum. Scandic hótelin fengu umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Talsmaður Scandic hótelanna segir að risarækjur hafi verið teknar af öllum matseðlum þeirra vegna vandamála með tilbúin efni og sýklalyf í rækjunum. Í sumar stöðvaði Matvælaeftirlit Norðurlandanna sendingu af risarækjum frá Víetnam. Prófanir höfðu sýnt að í rækjunum var að finna sýklalyf sem getur verið hættulegt fólki.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira