Með 35 ára reynslu 11. janúar 2012 16:00 Jóhann Berg Þorsteinsson býr yfir 35 ára reynslu í sölu nýrra bíla og tækja hjá Ingvari Helgasyni og Bifreiðum & landbúnaðarvélum. mynd/gva
Þótt Jóhann Berg Þorgeirsson, söluráðgjafi hjá fyrirtækjaþjónustu Ingvars Helgasonar og B&L, hafi bæst í hóp afbragðs starfsmanna fyrirtækisins um nýliðin áramót, er hann þó langt í frá nýr í faginu. „Ég hef 35 ára reynslu í sölu á nýjum bílum og tækjum, og starfaði lengst af hjá Ingvari Helgasyni og Bifreiðum og landbúnaðarvélum,“ útskýrir Jóhann sem miðlar atvinnurekendum sem leita til IH og B&L af sannri reynslu þegar kemur að nýjum farkosti. „Á árunum fyrir hrun bílamarkaðsins var B&L með afar öfluga atvinnubíladeild og hefur bílaframleiðandinn Renault verið árum saman með söluhæstu sendibíla landsins. Mitt aðalstarf er að þjónusta jafnt stór sem smá fyrirtæki við endurnýjun bíla og skipulagningu flotans. Það mikla framboð bíla sem umboðið hefur að bjóða gerir okkur að einum besta valkosti sem fyrirtækjum stendur til boða í dag,“ útskýrir Jóhann. Eftir sameiningu fyrirtækjanna árið 2009 voru kraftar sameinaðir í fyrirtækja- og flotasölu. „Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og í fyrra varð fyrirtækið næststærst á flotamarkaði, með tæplega 500 bíla selda. Við ætlum að efla atvinnu- og fyrirtækjaþjónustu okkar í takt við væntanlegan vöxt á markaði með því að efla þjónustu við smærri sem stærri fyrirtæki,“ segir Jóhann sem sinnir af alúð þjónustu við fyrirtæki og þeirra óskir. „Á næstunni kynnum við til sögunnar nýja rekstrarleigu, og bjóðum fyrirtækjum nú þegar þjónustuna Léttskoðun sem er endurgjaldslaust, reglubundið eftirlit sem léttir undir með rekstri fyrirtækjabíla.“
Mest lesið Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira