Sagðist eiga skilið heiðursmerki 7. febrúar 2012 01:00 Anders Behring Breivik Eftirlifendur fjöldamorðanna og aðstandendur hinna myrtu voru margir ósáttir við að sjá manninn koma fram í réttarsal. nordicphotos/AFP
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sagðist eiga skilið heiðursmerki og krafðist þess að vera látinn laus. Þetta sagði hann í réttarsal í Ósló í gær, þegar ákveðið var að framlengja gæsluvarðhald hans til 16. apríl, en þann dag hefjast réttarhöld í máli hans. Breivik hefur viðurkennt að hafa myrt 77 manns 22. júlí í sumar. Myndatökur voru leyfðar í réttarsalnum í gær, í fyrsta sinn frá því að Breivik var handtekinn. Hann sagði ekkert í tveggja mínútna beinni sjónvarpsútsendingu, en sagði stuttu síðar við dómarann að hann tæki ekkert mark á þessum dómstól og teldi sig ekki hafa framið neinn glæp. Geðlæknar komust í haust að þeirri niðurstöðu að hann væri geðveikur og þar af leiðandi ekki sakhæfur. Önnur nefnd geðlækna hefur hins vegar fengið það verkefni að endurskoða þá niðurstöðu. Verði hann metinn sakhæfur á hann yfir höfði sér allt að 21 árs fangelsi, en annars verður hann settur í umsjón lækna á geðsjúkrahúsi um óákveðinn tíma.- gb
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Fleiri fréttir Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Sjá meira