Baráttubarinn minn Erla Hlynsdóttir skrifar 2. apríl 2012 07:00 Þá er komið að því. Ég ætla að opna bar. En ekki neinn venjulegan bar, nei. Þessi bar verður opnaður til að berjast gegn alkóhólisma. Það er sorgleg staðreynd að fólk er í auknum mæli að drekka áfengi heima hjá sér, algjörlega eftirlitslaust. Á mínum bar verður ótrúlega gott verð á áfengi þannig að það verður mun hagstæðara að kaupa áfengi hjá mér. Auðvitað græði ég pening á því að fólk kaupi af mér áfengi, en það er algjört aukaatriði fyrir mig. Ég vil bara bjóða fólki upp á umhverfi þar sem það getur farið á fyllerí undir eftirliti og leggja þannig mitt af mörkum til að bæta samfélagið. Inn af barnum stefni ég síðan á að hafa lítið vændishús. Bara rétt passlega stórt til að koma í veg fyrir nauðganir á Íslandi. Ég kem til með að bjóða upp á stelpur á öllum aldri, af öllum stærðum og gerðum. Til er fólk (aðallega konur) sem halda að nauðganir snúist um valdbeitingu og kúgun. Ég veit hins vegar að þeir sem nauðga gera það bara því þeir fá ekki nóg að ríða. Það er því nauðsynlegt að bjóða upp á þessa þjónustu. Á vændishúsinu mínu verður nóg af smokkum og stelpurnar fara reglulega í skoðun hjá kvensjúkdómalækni til að tryggja að þær séu ekki að dreifa klamydíu eða herpes. Síðan þurfa allir viðskiptavinirnir að skrifa undir yfirlýsingu þar sem segir að þeir beri ómælda virðingu fyrir stelpunum. Það er auðvitað bara formsatriði. Inni á barnum, framan við vændishúsið, verður síðan þetta líka fína spilavíti þar sem markmiðið er að vinna gegn spilafíkn. Eins og staðan er í dag neyðist áhugafólk um fjárhættuspil til að notast við spilakassa í sjoppum þar sem enginn fylgist með því. Meira að segja eru dæmi um að börn og unglingar komist í þetta. Síðan færist í aukana að fólk sé einsamalt heima hjá sér, eftirlitslaust, og tapi háum upphæðum á spilasíðum á Netinu. Þetta er auðvitað ólíðandi. Allt að sjö þúsund Íslendingar eiga í verulegum vanda vegna spilafíknar. Þetta fólk mun eiga athvarf hjá mér. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bakþankar Erla Hlynsdóttir Mest lesið Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson Skoðun