Virði fasteigna N1 lækkaði um tvo milljarða á sex mánuðum 25. apríl 2012 08:00
Virði þeirra fasteigna sem hýsa starfsemi N1 rýrnaði um tæpa tvö milljarða króna á tæplega sex mánaða tímabili í lok árs 2011. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir það ár. Fjárhagslegri endurskipulagningu N1 lauk með undirritun á frjálsum nauðasamningum félagsins 24. júní 2011. Ein af forsendum nauðasamningsins var að N1 myndi kaupa fasteignir Umtaks ehf., sem hýsa starfsemi N1, á 9,5 milljarða króna af Arion banka, sem hafði leyst til sín Umtak. Um sex mánuðum síðar var síðan framkvæmt virðisrýrnunarpróf á fasteignum félagsins. Í ársreikningi N1 segir að „niðurstöður virðisrýrnunarprófsins leiddu til gjaldfærslu í rekstrarreikningi að fjárhæð 1.988 millj. kr. og samvarandi lækkunar á bókfærðu virði fasteigna". Við endurskipulagningu N1 í fyrrasumar varð Arion banki stærsti eigandi félagsins með 39% eignarhlut. Sá hlutur var seldur til Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) í lok september 2011 en viðskiptin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þau viðskipti hafa ekki enn verið kláruð. Gangi þau eftir mun FSÍ fara með tæplega 55% eignarhlut í N1. - þsj
Fréttir Mest lesið Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Fleiri fréttir Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Sjá meira