Viðskipti innlent

Upp­sagnir í Arion banka

Árni Sæberg og Bjarki Sigurðsson skrifa
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm

Um tuttugu starfsmenn munu hætta störfum hjá Arion banka í septembermánuði, flestir í dag. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka í samtali við fréttastofu. 

Þetta kemur einnig fram í tölvubréfi til starfsmanna bankans. Samkvæmt því munu uppsagnirnar taka gildi um mánaðamót. Þá segir að ástæður uppsagna séu markmið um að auka skilvirkni í rekstri bankans. Búið er að tilkynna breytingarnar öllu því starfsfólki sem þær ná til. 

Ekki er um hópuppsögn að ræða þar sem lög um hópsuppsagnir gilda aðeins um uppsagnir að minnsta kosti 30 starfsmanna ef 300 eða fleiri starfsmenn starfa í viðkomandi fyrirtæki. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×