Boðar sölu á Landsbankahlut í ár 14. júní 2012 00:00 BAnkasala Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lét þau orð falla við Reuters að til stæði að hefja sölu á hluta ríkisins í Landsbankanum í ár. Fréttablaðið/Anton
Til stendur að hefja sölu á hlut ríkisins að því er Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í viðtali við fréttastofuna Reuters. Salan er ekki að öllu í samræmi við framtíðarstefnu Bankasýslu ríkisins frá í mars síðastliðnum, þar sem segir að stofnunin geri ekki ráð fyrir því að leggja til að sala eignarhluta í Arion banka og Landsbankanum geti hafist fyrr en á næsta ári. Bankasýslan heyrir undir Oddnýju Harðardóttur fjármálaráðherra. Gunnar Tryggvason, aðstoðarmaður Oddnýjar, sagði í samtali við Fréttablaðið að ráðherra hafi „þá yfirlýstu stefnu að fylgja ráðum bankasýslunnar í þessu máli". Ríkið á sem stendur 81,3 prósenta hlut í Landsbankanum, en í viðtalinu við Reuters segir Jóhanna að til standi að selja hluta af eign ríkisins í bankanum, en stefnt sé að því að halda eftir um 66 prósenta hlut. Jóhanna segir jafnframt að stefnt sé að því að selja hluti ríkisins í hinum bönkunum ef rétt verð fáist fyrir þá. Ríkið á 13 prósenta hlut í Arion banka og 5 prósent í Íslandsbanka auk misstórra hluta í fimm sparisjóðum víða um land.- þj
Fréttir Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Sjá meira