Vændisfólk í bílskúr sendiráðsins 28. ágúst 2012 01:00 Í kaupmannahöfn Starfsmenn kanadíska sendiráðsins segja misferli hafa átt sér þar stað.
Tveir starfsmenn kanadísku stjórnarinnar hafa verið í Kaupmannahöfn til að rannsaka meint misferli í sendiráði Kanada í borginni, svo sem misnotkun á eignum sendiráðsins, kynþáttafordóma, einelti, ráðningu svarts vinnuafls og vændi í bílskúr sendiráðsins. Öryggisvörður er sagður hafa sést á myndbandsupptöku með vændisfólk í sendiráðsbíl sem lagt hafði verið í bílskúr sendiráðsins. Nokkrir starfsmenn sendiráðsins greindu utanríkisráðherra Kanada, John Baird, frá meintu misferli og taka fyrrverandi starfsmenn sendiráðsins undir ásakanirnar, að því er kemur fram á fréttavef Ottawa Citizen. Utanríkisráðherrann sendi þegar í stað embættismenn frá Kanada til Kaupmannahafnar til að rannsaka málið. Árið 2001 komst það í fréttir að fyrrverandi sendiherra Kanada í Danmörku hefði verið kallaður heim árið 1995 eftir að ung starfskona sendiráðsins sakaði hann um kynferðislega áreitni í jólaveislu í sendiráðinu. Í kjölfar þess máls ákvað fyrrverandi utanríkisráðherra Kanada að lögreglu yrði gert viðvart þegar kanadískir sendiráðsstarfsmenn sættu ásökunum um lögbrot. - ibs
Fréttir Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira