Ragnar og Róbert fóru í reynslu hjá Kristianstad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2013 14:30
FH-ingurinn Ragnar Jóhannsson og Framarinn Róbert Aron Hostert nýttu HM-hléið til þess að skella sér á reynslu hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad en með því spilar einmitt landsliðsmaðurinn Ólafur Guðmundsson. Ragnar og Róbert eru þó ekkert á leiðinni frá sínum félögum á þessu tímabili samkvæmt heimildum Vísis en svo gæti farið að þeir færu til Svíþjóðar fyrir næsta tímabil. IFK Kristianstad er eins og er í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 29 stig og aðeins einu stigi á eftir toppliði Lugi HF. Ragnar Jóhannsson er 22 ára hægri skytta sem hefur skorað 62 mörk í 12 leikjum með FH í N1 deild karla í vetur. Róbert Aron Hostert er 21 árs vinstri skytta sem hefur skorað 49 mörk í 10 leikjum með Fram í N1 deild karla í vetur. Ragnar og Róbert voru báðir með 19 ára landsliðinu sem varð í öðru sæti á HM í Túnis 2009. Í því liði voru einnig Aron Pálmarsson, Ólafur Guðmundsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Heimir Heimisson sem allir eru farnir að spila erlendis og þrír þeir fyrstnefndu voru ennfremur í A-landsliðinu sem tók þátt í HM á Spáni á dögunum.
Olís-deild karla Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Fótbolti ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Sjá meira