Wilshere: Chelsea er fyrirmyndin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2013 15:15 Jack Wilshere. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal, hefur verið mikið í umræðunni fyrir leikinn í kvöld á móti Bayern München í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Arsenal þarf á stórleik að halda frá þessum 21 árs gamla miðjumanni ef liðið ætlar að ná hagstæðum úrslitum fyrir seinni leikinn í München. Wilshere vonast til að Arsenal geti hermt eftir Chelsea-liðinu frá því í fyrravetur en Chelsea-menn létu þá ekki slakt gengi í deildinni heima koma í veg fyrir að liðið fór alla leið í Meistaradeildinni. „Chelsea-liðið frá því í fyrra er fyrirmyndin og innblástur fyrir okkur alla. Þótt að þú hafir ekki átt gott ár þá er allt hægt með smá heppni og karakter. Við verðum að trúa á slíkt. Við höfum líka unnið stórlið á heimavelli í Evrópukeppninni áður," sagði Jack Wilshere. Arsenal hefur aldrei unnið Meistaradeildina en komst alla leið í úrslitaleikinn fyrir sjö árum þegar liðið tapaði á móti Barcelona. Jack Wilshere náði að spila tvo leiki í Meistaradeildinni fyrir jól, í 2-2 jafntefli á útivelli á móti Schalke 04 og 2-0 heimsigur á Montpellier þar sem hann skoraði annað markið. Það voru fyrstu Meistaradeildir hans síðan í 1-3 tapi í Barcelona í 16 liða úrslitunum 2011. Leikur Arsenal og Bayern München hefst klukkan 19.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Fótbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fleiri fréttir Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Sjá meira