Sigurður og Sverrir Þór geta báðir unnið annað árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2013 09:00 Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur, og Sigurður Ingimundarson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Mynd/Anton
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur, og Sigurður Ingimundarson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, geta báðir unnið bikarinn annað árið í röð i dag en þeir eru þeir einu í Laugardalshöllinni í dag sem urðu bikarmeistarar í fyrra. Báðir eru þeir þó að spila um annan bikar en þeir unnu í fyrra. Sverrir Þór gerði þá kvennalið Njarðvíkur að bikarmeisturum en karlalið Keflavíkur varð bikarmeistari undir stjórn Sigurðar. Sigurður stýrir Keflavík á móti Val í kvennaleiknum sem hefst klukkan 13.30 en Sverrir Þór stjórnar Grindavíkurliðinu á móti Stjörnunni og hefst sá leikur klukkan 16.00. Það hefur aðeins einn þjálfari náð að vinna báða bikarana með aðeins eins árs millibili og það er einmitt Sigurður Ingimundarson sjálfur. Hann gerði Keflavíkurstelpurnar að bikarmeisturum 1996 og vann karlabikarinn með Keflavík árið eftir. Stelpuleikurinn fór þó ekki fram í Laugardalshöllinni heldur í Garði. Einar Bollason gerði reyndar betur því KR vann tvöfalt undir hans stjórn árið 1977. Einar er eini þjálfarinn sem hefur gert bæði karla- og kvennalið að bikarmeisturum á sama ári. Sigurður hefur gert bæði karla- og kvennalið að bikarmeisturum áður en Sverrir Þór getur komist í hóp þriggja þjálfara sem hefur tekist að vinna bikarmeistaratitilinn með bæði karla- og kvennaliði. Hinir eru auk Sigurðar, Jón Kr. Gíslason og Falur Harðarson.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Enski boltinn New York Knicks vann titil í nótt Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Sjá meira