Michael Jordan hjálpar Luke Donald 14. febrúar 2013 22:45 Donald og Jordan saman á golfvellinum.
Englendingurinn Luke Donald er einn besti kylfingur heims og hefur verið á toppnum undanfarin ár. Honum hefur þó ekki enn tekist að vinna risamót. Hann hefur verið efstur á peningalistanum á PGA-mótaröðinni sem og á Evróputúrnum. Hann er ekki sáttur við að hafa aldrei unnið risamót og fer nú óhefðbundnar leiðir til að ná því markmiði sínu. Donald hefur nú leitað til körfuboltagoðsagnarinnar Michael Jordan sem hann vonar að geti hjálpað sér með andlegu hliðina. "Michael er afar indæll náungi sem ég hef kynnst vel upp á síðkastið," sagði Donald sem hefur verið búsettur í Chicago undanfarin ár. "Konurnar okkar eru vinkonur og við spilum mikið saman. Það er alltaf jafn gaman að tæma veskið hjá honum. "Hann er sterkur á andlega sviðinu og ég efast ekki um að hann getur kennt mér ýmislegt þar. Það er gott að fá að krukka í hausnum á Michael og fá að vita hvað hann hugsaði er hann spilaði körfubolta."
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira