Umfjöllun og viðtöl: HK - Akureyri 23-22 | Bæði lið í sumarfrí Elvar Geir Magnússon skrifar 25. mars 2013 21:30 Mynd/Valli
Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins var með beina lýsingu frá viðureign HK og Akureyrar í lokaumferð N1-deild karla í handbolta en HK átti enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni. HK vann 23-22 en það dugði ekki til þar sem ÍR vann Fram. Hefði Safamýrarliðið unnið þá hefði HK komist í úrslitakeppnina en bæði HK og Akureyri eru nú komin í frí. Fyrir leikinn í kvöld var ljóst að þetta væri síðasti leikur Akureyrar á tímabilinu. Leikmenn þeirra mættu í leikinn til að hafa gaman að honum eins og sást hjá þeim strax í upphitun. Meiri skjálfti var í heimamönnum í upphafi. Akureyri komst í 9-3 á 15. mínútu en tókst síðan ekki að skora meira í hálfleiknum meðan HK-ingar skoruðu átta mörk í röð. Það var svo jafnræði með liðunum í seinni hálfleik og spennan mikil. Þegar um tíu mínútur voru til leiksloka var Fram yfir gegn ÍR og HK yfir svo Kópavogsliðið var þá inni í úrslitakeppninni. Á lokasprettinum reyndust ÍR-ingar sterkari. Það er því ljóst að það eru þessi tvö lið sem mættust í Digranesi í kvöld sem eru komin í sumarfrí. Tandri Már Konráðsson var markahæstur í leiknum með sjö mörk en markverðir beggja liða áttu þá fínan leik.Kristinn Guðmundsson: Mjög svekkjandi "Við gerðum ekki nægilega vel. Það voru tímapunktar á tímabilinu sem við getum horft til baka á og svekkt okkur yfir. Það er mjög svekkjandi að hafa misst af úrslitakeppninni og við getum engum kennt um nema okkur sjálfum," segir Kristinn Guðmundsson, þjálfari HK. "Við vorum arfaslakir framan af þessu ári og vorum of lengi að ná inn þeim takti sem þarf að vera til staðar hjá okkur og þar af leiðandi þá gekk illa og við hrukkum ekki almennilega í gang fyrr en of seint." "Það er vonlaus staða að þurfa að treysta á aðra. Það er ekkert við Framara að sakast, þeir skulda okkur ekki neitt. Það er engin skylda hjá þeim að gera eitthvað fyrir okkur." Hvað tekur núna við? "Það tekur frí og svo skoðum við málin." Að lokum fengum við Kristinn til að setja sig í spámannsstellingar og spá fyrir um næstu Íslandsmeistara: "Ég ætla að spá því að FH verði Íslandsmeistari."Heimir Örn: Býst við að verðum áframEins og áður sagði var vitað fyrir leik að þetta væri síðasti leikur Akureyrar á tímabilinu. Vísir ræddi við Heimi Örn Árnason, annan af spilandi þjálfurum Akureyrar. Hann býst við því að hann og Bjarni Fritzson verði áfram með liðið. "Þetta var ágætis leikur. Við vorum bara flottir og hefðum getað stolið þessu í lokin. Við ætluðum bara að hafa gaman að þessu. Snillingurinn Jón Heiðar Sigurðsson stóð sig frábærlega í seinni hálfleik, hann var sem töframaður á miðjunni. Toppmaður," sagði Heimir. Hvaða lærdóm er hægt að draga af tímabilinu? "Meiðast ekki... nei við lærðum helling af þessu. Meðal annars að takast á við mótlæti. Það munaði ekki miklu að við yrðum í algjöru rugli en við náðum að stíga upp á réttum tíma. Því miður fyrir ungt lið Aftureldingar er það fallið, það er sorglegt. Ég er hrifinn af þessum ungu strákum, þeir eru líka svo stórir annað en ég," sagði Heimir hress. "Ég býst við því að við verðum áfram með liðið. Það kemur bara í ljós. Við eigum eftir að setjast niður og kanna leikmannamál. Það á eftir að fara yfir málin." Hvaða lið verður Íslandsmeistari? "Ef Siggi Eggerts heldur svona áfram verður Fram Íslandsmeistari. Engin pressa á hann samt."
Olís-deild karla Mest lesið Leik lokið: Valur - Tindastóll 85-87 | Basile með sigurkörfu Körfubolti Opnaði sig um skilnaðinn og erfiða tíma Sport Niðurbrotin Eygló keppir ekki á HM Sport Trump fær blóðugan bardaga í Hvíta húsinu í afmælisgjöf Sport Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Íslenski boltinn Arnar Gunnlaugs segir gagnrýnendur Liverpool gleyma mannlega þættinum Enski boltinn „Hættiði að horfa á klám og hættiði að runka ykkur“ Sport UEFA grætur niðurstöðuna en gefur grænt ljós Fótbolti Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum Íslenski boltinn Stólarnir komust ekki heim og æfa í Grindavík fyrir stórleikinn Sport Fleiri fréttir Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sjá meira