Missir af Masters Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. apríl 2013 08:31 Clarke sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2011. Nordicphotos/Getty
Darren Clarke missir af Masters-mótinu í golfi sem hefst á Augusta-vellinum á fimmtudag. Meiðsli í læri er ástæða þess að Norður-Írinn hefur orðið að draga sig úr keppni. „Það er með trega í hjarta sem ég tilkynni að ég mun ekki geta leikið á Augusta í ár," segir í tilkynningu sem Clarke birti á heimasíðu sinni. Clarke tognaði aftan í læri í fríi á Bahama-eyjum á dögunum og missir fyrir vikið af fyrsta stórmóti ársins. „Að spila á Masters er ein mesta unaðstilfinning kylfingsins svo það eru gríðarleg vonbrigði að geta ekki verið með," segir Clarke. Clarke hætti við keppni á Valero Texas mótinu í síðustu viku vegna meiðslanna. Var hugmyndin sú að koma sér í stand fyrir Masters-mótið og hefur hann farið í sjúkraþjálfun tvisvar á dag til að vinna bug á meiðslunum. Því miður fyrir Norður-Írann og stuðningsmenn hans hefur Clarke tapað kapphlaupinu við tímann.Sportið á Vísi er á Facebook. Fylgstu með.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira