Heppnin ekki með Tiger á fimmtándu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2013 23:59
Tiger Woods er í 7. sæti og þremur höggum á eftir efsta manni þegar Mastersmótið í golfi er hálfnað. Tiger byrjaði vel á öðrum hring en hafði ekki heppnina með sér á fimmtándu holunni. Tiger lék fyrstu fjórtán holurnar á þremur höggum undir pari og var á þeim tímapunkti í efsta sætið ásamt þeim Fred Couples og Marc Leishman en allir höfðu þeir þá leikið á fimm höggum undir pari. Tiger tapaði hinsvegar höggi þegar þriðja högg hans inn á fimmtándu flöt small í stönginni og skoppaði út í vatn. Hann þurfti því að taka annað högg en gerði það með glæsibrag og tapaði því ekki nema einu höggi á holunni. Þessi óheppni fór reyndar ekki vel í Woods sem endaði daginn ekki nógu vel og tapaði meðal annars höggi á átjándu holunni. Hann endaði því daginn á einu höggi undir pari og er því á þremur höggum undir pari eftir 36 holur. Það er hægt að sjá vandræði Tiger á fimmtándu holunni með því að smella hér fyrir ofan.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira