Hagur Pandóru, og Seðlabanka Íslands, vænkast verulega 14. maí 2013 08:22
Danski skartgripaframleiðandinn Pandóra hefur lagt fram rjómauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins. Hagnaður eftir skatta nam 438 milljónum danskra kr. eða um 9,2 milljörðum kr. Þetta er 100 milljónum danskra kr. meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Seljendalánið sem Seðlabankinn veitti kaupendum FIH bankans árið 2010 er að hluta til bundið við gengi Pandóru, eða raunar fjárfestingasjóðsins Axcel sem er stærsti eigandi Pandóru. Seðlabankinn á töluverðra hagsmuna að gæta að Pandóru gangi vel. Sjá hér.Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að gengi á hlutum í Pandóru hafi hækkað verulega í kjölfar uppgjörsins séu nú að nálgast útboðsgengið árið 2010, þegar Pandóra var sett á markað. Sökum þessa gæti nú verið lag fyrir eigendur Pandóru að selja hluti sína. Gengi Pandóru hefur verið mjög brösótt frá því fyrirtækið var skráð í kauphöllina í Kaupmannahöfn. Um tíma í fyrra leit framtíðin verulega illa út. Sjá hér.Í dag er staðan önnur eins og fyrr segir og gengi hluta í Pandóru er að nálgast 210 danskar kr. sem var útboðsgengið. Það er þó ekki víst að Axcel sjóðurinn selji hlut sinn í Pandóru. Jyllands Posten hefur eftir greinenda hjá Sydbank að það gæti verið skynsamlegt að halda hlutunum enn um sinn því allar líkur séu á að hlutir í Pandóru muni frekar hækka í verði en lækka eftir því sem líður á árið.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira