Sagður hafa hætt við vegna óánægju aðdáenda 16. október 2013 21:00 Charle Hunnam og Dakota Johnson áttu að fara með hlutverk Greys og Anastasiu Steele. Nordicphotos/Getty
Breski leikarinn Charlie Hunnam mun ekki fara með hlutverk milljarðamæringsins Christians Grey í kvikmynd byggðri á metsölubókinni Fimmtíu gráir skuggar. Í byrjun september var tilkynnt um að Hunnam og Dakota Johnson færu með hlutverk Greys og Anastasiu Steele. Nú þarf Universal hins vegar að finna nýjan Grey. Fjölmiðlar hið vestra hafa mikið velt sér upp úr brotthvarfi Hunnams, en skýringin sem gefin var fyrir brotthvarfi hans var sú að tökur á myndinni stönguðust á við tökur á sjónvarpsþáttunum Sons of Anarchy. Fjölmiðlar vilja þó meina að önnur ástæða liggi að baki enda hefur hvorug tökuáætlunin breyst frá því að gengið var frá samningum. Líklegt þykir að leikarinn hafi hætt við eftir holskeflu gagnrýnisradda, bæði frá aðdáendum Hunnams sem og aðdáendum bókanna. Aðrir telja að Universal, sem framleiðir myndina, hafi rift samningum við Hunnam vegna þess að hann þótti ekki líklegur til að geta borið myndina uppi ásamt hinni óreyndu leikkonu Dakota Johnson. Hver svo sem hin raunverulega ástæða reynist vera er ljóst að Universal þarf að hafa hraðar hendur við að finna staðgengil Hunnams því tökur á myndinni eiga að hefjast í nóvember.Charlie Hunnam Drops Out Of 'Fifty Shades Of Grey' Film, Ian Somerhalder, Matt Bomer And Henry... http://t.co/4bAn2rYAO3— Charlie Hunnam (@ECharlieHunnam) October 13, 2013
Mest lesið Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Lífið Fleiri fréttir Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira