Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. ágúst 2026 10:01 Johnny Depp hefur lítið leikið síðustu ár en virðist stefna á Hollywood-endurkomu. EPA Leikarinn Johnny Depp er í viðræðum við Disney um að snúa aftur sem sjóræninginn Jack Sparrow í kvikmyndaseríuna Sjóræningjar Karabíska hafsins. Depp lék karakterinn síðast í fimmtu mynd seríunnar árið 2017. Disney skar svo á tengsl við leikarann í kjölfar þess að leikkonan Amber Heard sakaði hann um heimilisofbeldi.
Framleiðandinn Jerry Bruckheimer, sem hefur talað fyrir endurkomu Depp síðustu ár, greindi frá viðræðunum á Disney-viðburðinum D23 um helgina. „Við erum að ræða við Johnny, við erum að vinna í handriti og vonandi getum við klárað þetta,“ sagði Bruckheimer við bransamiðillinn Deadline um helgina. Bruckheimer sagði síðasta sumar frá því að Depp væri opinn fyrir því að snúa aftur í seríuna að því gefnu að handritið væri nægilega gott. Áður hafði Depp sagt að hann myndi ekki leika aftur í seríunni nema hann fengi 300 milljónir dala fyrir það. Sömuleiðis virtist Disney búið að segja alveg skilið við Depp eftir að stórfyrirtækið skar á öll tengsl við hann í kjölfar ásakana Heard. Í réttarhöldunum milli Depp og Heard árið 2022 upplifði hann sig „svikinn“ og fannst Disney hafa yfirgefið sig. Depp hefur ekki leikið Sparrow síðan í fimmtu myndinni, Pirates of the Caribbean: Dead Men Tell No Tales, sem fékk hræðilegar viðtökur gagnrýnanda og minni aðsókn en myndirnar á undan. Um tíma virtist Disney staðráðið í að endurræsa seríuna með nýrri mynd þar sem einblínt væri á son Jacks Sparrow og nýjan karakter sem yrði leikinn af Margot Robbie. Nú virðist sem Sparrow verði allavega eitthvað með. Ferill Depp hefur sömuleiðis verið í algjörri biðstöðu eftir að hann hætti að fá hlutverk í Hollywood-myndum. Síðustu sjö ár hefur Depp aðallega leikið í litlum sjálfstæðum myndum eða evrópskum kvikmyndum. Hins vegar virðist Hollywood búið að fyrirgefa Depp sem er byrjaður að fá hlutverk aftur í bransanum, þar má nefna jólamyndina Ebenezer: A Christmas Carol sem kemur út í nóvember næstkomandi og spennutryllinn Day Drinker sem kemur út á næsta ári.
Bíó og sjónvarp Hollywood Disney Deilur Johnny Depp og Amber Heard Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira