Heimildamynd um Davíð Oddsson í bíó annað kvöld Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. nóvember 2013 16:17 Í myndinni er rætt við Björn Bjarnason, Guðna Ágústsson, Hannes Hólmstein Gissurarson, Illuga Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson.
Heimildarmynd um Davíð Oddsson sem ber nafnið Þúsund stormar verður sýnd í Bíó Paradís annað kvöld. Í myndinni er rætt við nokkra samferðamenn Davíðs auk þess sem sýnd eru brot úr upptökum Sjónvarpsins af honum.Rafn Steingrímsson og Stefán Gunnar Sveinsson ritstýrðu myndinni. Rafn segir hugmyndina að henni hafa kviknað í stjórnartíð Ólafs Nielsen, fyrrverandi formanns SUS en hann hafi tekið við verkefninu síðar. „Þá varð þetta aðeins stærra í sniðum og myndin varð smám saman efnismeiri.“ Í myndinni er rætt við Björn Bjarnason, Guðna Ágústsson, Hannes Hólmstein Gissurarson, Illuga Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson. Rafn segir ástæðuna fyrir því að ekki er rætt við neinar konur í myndinni að engin þeirra sem þeir höfðu samband við hafi verið til taks þegar framleiðslan var í gangi. Hann segir það miður. Hann segir þó að eðli málsins samkvæmt hafi færri konur en karlar komið til greina, þar sem í stjórnartíð Davíðs hafi til dæmis verið mun fleiri karlráðherrar en kvenráðherrar. Það sé ekki veruleiki sem hægt sé að breyta eftir á. Myndin verður sýnd klukkan 20 annað kvöld og eftir sýningu mun Hannes Hólmstein svara spurningum.
Mest lesið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Lífið Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Lífið Fleiri fréttir Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira