Olíusalan dróst saman um 40% 10. janúar 2013 11:00 Olíuframleiðsla Írans dróst saman um fjörutíu prósent á einu ári vegna refsiaðgerða vesturveldanna. NordicPhotos/AFP
Olíusala Írans hefur fallið um allt að fjörutíu prósent frá því að vesturveldin hertu á viðskiptaþvingunum á landið fyrir um ári. Þetta staðfestir Rostam Quasemi, olíumálaráðherra Írans, og gefur í skyn að enn meiri samdráttar sé von. Samdrátturinn er vegna refsiaðgerða sem eru tilkomnar vegna andstöðu vesturveldanna við kjarnorkuáætlun Írans. Stjórnvöld þar í landi hafa fram að þessu þrætt fyrir hin neikvæðu áhrif sem aðgerðirnar hafa haft en tölur frá OPEC, samtökum olíuríkja, og Alþjóða orkumálastofnun bentu til þess að framleiðslan hefði dregist saman úr 2,4 milljónum tunna á dag í 1,4 milljónir undir lok 2012. Íranar halda sig fast við kjarnorkuáætlun sína og segja þá auðgun úrans sem fer fram í kjarnorkuverum þeirra einungis vera til orkuframleiðslu og borgaralegra nota, en vesturveldin og Ísrael telja að írönsk stjórnvöld stefni að því að framleiða kjarnorkuvopn. Viðskiptaþvinganirnar síðasta árið hafa þrengt verulega að viðskipta- og efnahagslífi Írans. Eitt úrræðið sem stjórnvöld hafa er að lækka gengi ríalsins til að auka innflutning, en það myndi hafa afar neikvæð áhrif á kaupmátt almennings og aðföng fyrirtækja. - þj
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira