Lýst yfir ábyrgðarleysi Hjalti Þórisson skrifar 25. apríl 2013 14:30 Það má einu gilda þó skillítið nóboddí af kjörskránni eins og undirritaður, teljist ekki vikta þungt þegar þjóðráðin ráðast. Ég áskil mér eigi að síður allan rétt til að firra mig ábyrgð á óhæfuverkum sem eru hér í uppsiglingu og eru reyndar þegar hafin. Vesalingur minn hefur, ásamt einstaka hjáróma rödd, ítrekað reynt að vara við þeim ófarnaði. Sú sturlaða umræða, sem hér hefur bulið á síðustu ár í vaxandi mæli varðandi það sem er kallað er „fjármál heimilanna" og hefur beinst gegn verðmætistryggingu fjárskuldbindinga, sem kallast verðtrygging, hefur nú skilað sér í því að alvöru hætta steðjar að því heilbrigðismeðali sem hún er í okkar verðbólgusjúka hagkerfi. Stjórnmálastéttin, nánast eins og hún leggur sig, hefur látið undan háreistinni og dregist inn í vinsældakapphlaupið - misst kjarkinn. Það sést og heyrist þegar hvert hreystimennið á fætur öðru lippast niður og kikknar í hnjánum og tekur undir með kórnum - þegar fylgistölurnar lækka. Þegar hefur verið unnið skemmdarverk á þessu kerfi með því að flokki í stjórnarminnihluta hélst það uppi á seinni hluta kjörtímabilsins að knýja fram sérstakt gæluverkefni eins þingmanns þeirra - sem kallað er „minnkað vægi verðtrygginga" og lýsir sér nú um stundir í lánveitingum á svokölluðum „óverðtryggðum" lánum og meira að segja Íbúðalánasjóður rembist við að láta kúgast. Er lagst á árar við að telja fólki trú um ágæti slíkra lána. Við því var varað. Ein atlagan er sú, að fá verðtryggingu dæmda ólöglega - með vísan til þess að veðbundin fjárfestingalán í fasteignum teljist neytendalán. Slík lán eru eðli máls samkvæmt ekki neytendalán og ef lög eða tilskipanir gefa eitthvað annað í skyn eru það ólög. Því verður þó að treysta að málið falli á þeim öðrum bábyljum sem til er tjaldað. Til marks um vinsældakvíða pólitíkusanna er, að Alþingi samþykkti nýskeð að veita málsókninni sérstaka flýtimeðferð fyrir dómstólum. Nú liggur lífið á. Þannig stendur stjórnmálastéttin í ístaðinu. Það yrði til að kóróna endemin hér - að það yrði dæmt ólöglegt að verðmætistryggja fjárskuldbindingar og léða fjármuni. Lögleysan liggur í breytilegu vöxtum, sem illu heilli voru átölulaust innleiddir af Seðlabankanum þann 1. maí 1976. Það tekur þó steininn úr þegar stjórnmálaflokkur - setur það á oddinn að afnema verðtryggingu og sópar til sín fjöldafylgi út á það. Eina vonarglætan felst í því að hann mun hafa sett það sem stjórnarmyndunarskilyrði. Ætla aðrir, vonandi ábyrgari, stjórnmálaflokkar að láta dragst út í það forað? - fyrir ráðherrastóla. Það er ekki ný bóla hér, að hýstería og múgsefjun grípi um sig og ráði för. Þá kemst ekkert annað að en upphrópanir og til lítils að æmta. Í þessu efni hefur sýnt sig að það er ekki yfirveguð, upplýst og rökviss umfjöllun sem nær eyrum landans, enda uppgjöfin í því efni æpandi. Rangfærslurnar eru látnar óátaldar án enda og bylja í eyrum - svo sem það öfugmælið að verðtrygging stuðli að verðbólgu, og eins, að hún hamli hagstjórninni. Slíkt fleipur lætur vel í eyrum einhverra. Það ærir óstöðugan að bera til baka allar þær rangfærslur og bábyljur sem hver étur eftir öðrum - t.d. ósannindi eins og þau, sem t.d. heyrast frá þingmönnum, að Íslendingar borgi húsnæði sitt tvisvar eða jafnvel oftar. Ég tel mér ekki skylt, frekar en öðrum blöðruselum, að rökstyðja mál mitt hér - til þess gefst hér hvorki pláss né tími. Margar og ítrekaðar óskir og tillögur um að fá vitræna umræðu um þessu mál og skilmerkilega kynningu á þeim, hafa ekki verið þegnar - af helstu umræðuþáttum Ríkisútvarpsins: Kastljósi, Speglinum, Silfrinu. Þar á bæjum er borist með straumnum. Til að bæta úr þessari vöntun vísa ég hér í greinar mínar, þær sem finna má á netinu. (Frbl.9.12.2010 og 28.7.2010, Mbl. 23.2.1997 og 20. 11 1991) Ábyrgðin á því ófremdarástandi sem hér er, varðandi fjárhagsstöðu ýmissa aðila eftir hrun, er þeirra stjórnmálaafla sem losuðu hér um allar hömlur og hleyptu öllu upp í loft - skaðinn er slíkur að hann verður ekki lagaður - þeirra afla sem nú njóta fyrirgefningar og velþóknunar þjóðarinnar - búsáhalda hvað ! Hér væri hins vegar allt enn ískyggilegra ef ekki nyti við verðtryggingar - og verðbólgan margföld það sem hún er nú um stundir. Dýrt var hrunið - en dýrkeyptari mun þessi „björgunaraðgerð" verða. Í ljósi þeirrar sturluðu umræðu, sem veður uppi í samfélaginu og pólitíkinni, um þessi mál og þeirra ískyggilegu vísbendinga sem skoðanakannanir veita, sé ég mig, sem kjósandi, persónulega knúinn til að lýsa yfir fullkomnu ábyrgðarleysi mínu á því sem fylgja kann í kjölfarið. Jafnframt lít ég á það sem aðför að mér og ólíðanlegt brot á réttindum mínum ef hróflað verður við lánskjörum mínum og ef rift verður þeim skilmálum sem ég hef skrifað upp á og nýt vel sáttur, sem eru og verið hafa verðtryggð. Ég þvæ hendur mínar. Hjalti Þórisson, skelkaður kjósandi Slóðir: Fréttablaðið 9.12.2010 https://www.visir.is/minnkad-vaegi-verdtrygginga-!!/article/2010572928804 Fréttablaðið 28.7.2010 http://epaper.visir.is/media/201007280000/pdf_online/1_18.pdf Morgunblaðið 23.2.1997 http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=316682 Morgunblaðið 20. 11 1991 http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1754388 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kosningar 2013 Skoðun Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar