Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar 19. september 2026 08:32 Forstjóri SÁÁ sagði upp störfum þann 6. ágúst. Hún sætti sig ekki við áherslur stjórnar SÁÁ um forgangsröðun og nýjar áherslur í þjónustu samtakanna. Né heldur sætti hún sig við afskipti stjórnar SÁÁ af innleiðingu samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Með örðum orðum, Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ sinnti starfi sínu ekki í samræmi við óskir stjórnar. Þegar stjórnin knúði á um athafnir sagði hún upp fremur en takast á við verkefnin. Það er síður en svo óalgengt að stjórnendur láti af störfum þegar sjónarmið þeirra og stjórnar rekast á. Aftur á móti er eftirleikurinn af þessari uppsögn fáheyrður. Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, gekk fram fyrir skjöldu og krafðist þess að Ragnheiður yrði „endurráðin” og alls ekki mætti auglýsa eftir nýjum forstjóra. Þegar ekki var orðið við þessari kröfu, þá sagði Valgerður upp og gekk út. Tilgangurinn var augljós, að knýja stjórnina til að fá Ragnheiði aftur til starfans og bakka út úr afskiptum af störfum hennar. Til að gefa kröfunum vægi sakaði Valgerður stjórn SÁÁ um að hafa farið langt inn á svið faglegrar stjórnunar heilbrigðisþjónustunnar. Í viðtali við Morgunblaðið 18. september segir Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ að enginn fótur sér fyrir þeim fullyrðingum Valgerðar. Klassísk valdabarátta Ekkert fer á milli mála að hér er um klassíska en mjög undarlega valdabaráttu að ræða. Forstjórinn segir upp, en Valgerður setur starf sitt að veði til að hún verði „endurráðin.“ Sú endurráðning átti hins vegar að tryggja að stjórn SÁÁ bakkaði út úr lögmæltu ábyrgðar- og eftirlitshlutverki sínu og léti starfsmönnum eftir að stjórna starfsemi samtakanna. Í tölvupósti til aðalstjórnar SÁÁ (áður en hún sagði upp) sagði Valgerður meðal annars: „Formaður og framkvæmdastjórn SÁÁ hafa farið langt inn á svið faglegrar stjórnunar heilbrigðisþjónustunnar, meðal annars varðandi forgangsröðun, framkvæmd verkefna og starfsmannamál, með óviðeigandi "eftirliti" og fyrirmælum. Með því hefur starfsumhverfi forstjóra orðið óviðunandi og hún taldi sér ekki lengur unnt að gegna starfinu, þótt hún kjósi helst að halda því áfram.” Það sem skín í gegn er að þær Valgerður og Ragnheiður vildu halda störfum sínum gegn því að stjórn SÁÁ hætti að sinna þeim verkefnum sem henni ber skylda til. Völdin yrðu færð frá stjórninni til þessara tveggja starfsmanna. Í tölvupósti sem Ragnheiður sendi aðalstjórn SÁÁ 13. september eru talin upp fjölmörg atriði til áréttingar því að „faglegir” stjórnendur eigi að halda um taumana fremur en stjórn samtakanna. Heggur sá er hlífa skyldi Þeim Valgerði og Ragnheiði tókst að æsa upp hluta af starfsfólki SÁÁ og fá það til að skrifa undir vantraust á stjórn samtakanna. Samt snertu deilur þeirra við stjórnina starfsfólkið á engan hátt. Í tölvupósti til hluta starfsmanna bað ég um dæmi þess að stjórn SÁÁ hefði haft afskipti af störfum þeirra sem leiddu til stuðnings við vantraust. Enginn svaraði. Það er grátlegt að verða vitni að tilraun tvímenninganna til að sölsa undir sig valdatauma og setja stjórn SÁÁ til hliðar. Þetta hefur valdið miklu uppnámi og stórskaðað SÁÁ. Heggur sá er hlífa skyldi. Skjólstæðingar SÁÁ í göngudeild, á Vogi og á Vík eru skildir eftir í lausu lofti. Til allrar hamingju hafa framkvæmdastjórn og aðalstjórn samtakanna ekki misst sjónar á ábyrgðarhlutverki sínu og tilgangi starfseminnar. Aldrei kom til greina að afhenda öðrum það hlutverk. Lofsvert er hversu föst fyrir formaður og varaformaður SÁÁ stóðu og settu heildarhagsmuni þessara 49 ára gömlu samtaka í fyrsta sæti. Eftirsjá að Valgerði Brotthvarf Valgerðar og það rask sem því fylgir dregur án efa til skemmri eða lengri tíma úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Með Valgerði hverfur mikil þekking og áratuga reynsla af meðferð fólks með fíknisjúkdóma. Að starfskröftum hennar er mikil eftirsjá. Ég vona enn að hægt verði að finna leið fyrir Valgerði aftur til starfa hjá SÁÁ, með skýra verkaskiptingu milli stjórnar, stjórnenda og fagfólks. Það væri að mínu mati farsælli niðurstaða fyrir alla - og fyrst og fremst fyrir þá skjólstæðinga sem SÁÁ vinnur fyrir. En tvo þarf til. Höfundur var framkvæmdastjóri SÁÁ 1990-2003, og varamaður í aðalstjórn SÁÁ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Fíkn Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar