Mickelson magnaður í Abú Dabí Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. janúar 2014 15:09 Mickelson brosti til áhorfenda í morgun. Vísir/Getty
Phil Mickelson sýndi allar sínu bestu hliðar á Abú Dabí-meistaramótinu í golfi í morgun. Hann skilaði sér í hús á 63 höggum eða níu undir pari vallarins. Mickelson fékk fjóra fugla og einn örn á fyrri níu holunum og bætti svo við fimm fuglum á seinni níu en hann fékk alls tvo skolla í dag. Skotinn Craig Lee er í forystu fyrir síðasta keppnisdaginn en hann lék á 69 höggum í dag og er á samtals tólf höggum undir pari. Mickelson og Gagganjeet Bhullar frá Indlandi koma svo næstir á tíu höggum undir pari.Rory McIlroy lék á 68 höggum í dag en var refsað um tvö högg fyrir að taka víti á röngum stað á annarri holu. Hann er í fjórða sæti á níu undir pari ásamt Spánverjanum Pablo Larrazabal. Sýnt er beint frá mótinu á Golfstöðinni en útsending frá lokakeppnisdeginum hefst klukkan níu í fyrramálið.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira