Feng leiðir á Kraft Nabisco eftir fyrsta hring 4. apríl 2014 09:47 Michelle Wie átti góðan fyrsta hring. AP/Vísir
Fyrsta risamót ársins í kvennagolfinu, Kraft Nabisco meistaramótið, hófst í gær á Mission Hills vellinum í Kaliforníuríki en allir bestu kvenkylfingar heims eru samankomnir á þessu glæsilega móti. Eftir fyrsta hring er hin kínverska Shanshan Feng í efsta sæti en hún kom inn á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Í öðru sæti eru þær Se Ri Park og Michelle Wie á fimm undir pari en sú síðarnefnda hefur leikið mjög gott golf að undanförnu og verður að teljast líkleg til afreka um helgina. Sá keppandi sem vakti þó mesta athygli á fyrsta hringnum er hin 15 ára gamla Angel Yin en hún er jöfn Amy Yang í fjórða sæti á fjórum höggum undir pari. Yin spilaði sig fyrst inn á risamót í golfi árið 2012, aðeins 13 ára gömul en hún er af mörgum talin ein efnilegasti kvenkylfingur heims. Áhugavert verður að fylgjast með hvort að Yin takist að blanda sér í toppbaráttuna um helgina en mamma hennar, Michelle Yin, er í hlutverki kylfusveins hjá dóttur sinni. Annar hringur fer fram í dag en Golfstöðin verður með beina útsendingu frá mótinu frá klukkan 22:00 í kvöld.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira