Lydia Ko sigraði á Swinging Skirts 28. apríl 2014 16:15 Lydia Ko fagnar sigrinum í gær. AP/Vísir
Hin 17 ára gamla Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi tryggði sér dramatískan sigur á Swinging Skirts meistaramótinu sem kláraðist í gær. Mótið fór fram á Lake Merced vellinum í Kaliforníu en Ko tryggði sér sigurinn með því að fá glæsilegan fugl á lokaholunni. Ko hefur tvisvar áður sigrað á LPGA móti en sigurinn í gær er hennar fyrsti sem atvinnukylfingur. Hún endaði mótið á samtals 12 höggum undir pari en hin vinsæla Stacy Lewis frá Bandaríkjunum var önnur á 11 höggum undir. Fyrir sigurinn fékk Ko rúmlega 35 milljónir króna sem verður að teljast fín afmælisgjöf en hún fagnaði 17 ára afmæli sínu í vikunni.Jenny Shin frá Suður-Kóreu endaði í þriðja sæti en hún lék hringina fjóra á 10 höggum undir pari. Efsti kylfingur á heimslista kvenna, Inbee Park, deildi fjórða sætinu með Shanshan Feng og Line Vedel á sex höggum undir pari.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira