Margir í toppbaráttunni á Crowne Plaza Invitational 25. maí 2014 11:50 Adam Scott er tveimur höggum frá efstu mönnum. AP/Getty
Það stefnir allt í spennandi lokahring á Crowne Plaza Invitational mótinu sem fram fer á Colonial vellinum í Texas en fjórir kylfingar deila efsta sætinu á sjö höggum undir pari. Það eru þeir Chris Stroud, Chad Campbell, David Thoms og Hideki Matsuyama en sex kylfingar deila fimmta sætinu á sex höggum undir pari. Alls eru 49 kylfingar sem eru innan við fimm höggum frá efsta sætinu og getur því hver sem er gert atlögu að titlinum í dag með góðum lokahring. Adam Scott er meðal þeirra en hann er á fimm höggum undir pari, einu höggi betri en heimamaðurinn Jordan Spieth sem er á fjórum undir. Lokahringurinn verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 í kvöld en þegar að mótinu líkur verður skipt yfir í beina útsendingu frá Airbus LPGA Classic þar sem bestu kvenkylfingar heims etja kappi.
Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira