Fyrrum fallhlífahermaður sigraði á Evrópumótaröðinni um helgina 4. júní 2014 08:30 Jaidee er skemmtilegur kylfingur. vísir/Getty
Tælenski kylfingurinn Thongchai Jaidee sigraði á Nordea masters sem fram fór í Svíþjóð um síðustu helgi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Sigur Jaidee er hans sjötti á mótaröðinni á ferlinum en hann lék hringina fjóra á PGA Sweden National vellinum á 16 höggum undir pari. Það gerðu þeir Stephen Gallacher og Victor Dubuisson einnig en Jaidee hafði betur á fyrstu holu í bráðabana eftir að hafa fengið glæsilegan fugl. Jaidee er einn af vinsælustu kylfingum Evrópumótaraðarinnar en hann er afar brosmildur og mjög högglangur miðað við hversu lágvaxinn hann er. Þá vekur athygli að hann hóf ekki að leika golf fyrr en um 16 ára aldur. Það entist þó ekki lengi þar sem hann var kallaður inn í tælenska herinn 18 ára gamall þar sem hann þjónaði sem fallhlífahermaður. Þrítugur að aldri gerðist hann síðan atvinnumaður í golfi en síðan þá hefur hann sigrað á 20 atvinnumótum í íþróttinni og er eins og stendur í 37. sæti heimslistans.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira