Enn tapar Grindavík | Markaveisla á Akureyri Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 21. júní 2014 15:45 Jóhann lék einu sinni með Grindavík. Nú skoraði hann fyrir KA vísir/vilhelm
Grindavík tapaði fjórða leik sínum af sex í 1. deild karla í fótbolta í dag þegar liðið tapaði 1-0 fyrir Haukum að Ásvöllum.Aron Jóhannsson tryggði Haukum sigurinn á Ásvöllum með marki sex mínútum fyrir hálfleik. Haukar komust upp í 6. sæti með 11 stig með sigrinum. Þróttur lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með 1-0 sigri á HK. Karl Brynjar Björnsson skoraði sigurmarkið á 68. mínútu. Þróttur er með 13 stig, tveimur meira en HK sem er í fimmta sæti. KA heldur áfram að rétta úr kútnum eftir slaka byrjun á mótinu. KA lagði KV 5-3 á Akureyri. Stefán Þór Pálsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson komu KA í 2-0 áður en Magnús Bernhard Gíslason minnkaði muninn tveimur mínútum fyrir hálfleik.Jóhann Helgason jók forystunna í 3-1 fyrir hálfleik og á sjöttu mínútu seinni hálfleiks skoraði Ævar Ingi Jóhannesson fjórða mark KA. Kristófer Eggertsson minnkaði muninn í 4-2 stundarfjórðungi fyrir leikslok. Á 90. mínútu minnkaði Tómas Agnarsson muninn í eitt mark en í uppbótartíma gerði Ævar Ingi endanlega út um leikinn.Björgvin Stefánsson tryggði BÍ/Bolungarvík mikilvægan sigur á Selfossi með marki á 61. mínútu. BÍ/Bolungarvík lyfti sér upp í 10. sæti með sigrinum á kostnað Grindavíkur sem er nú í fallsæti.
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Scholes kallar Arsenal „f-g leiðinlegt lið“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Sjá meira