Valdís Þóra og Ragnhildur efstar eftir fyrsta dag Kristinn Páll Teitsson skrifar 24. júlí 2014 15:11 Valdís Þóra. Mynd/GSÍmyndir.net
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbb Reykjavíkur eru efstar eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í höggleik sem fer fram um helgina. Báðar byrjuðu þær illa og fengu tvöfaldan skolla á fyrstu holu dagsins og því fylgdu þrír skollar á fyrri níu holum vallarins. Valdís náði að krækja í fugl á fjórðu og Ragnhildur á þeirri áttundu og voru þær á fjórum höggum yfir pari eftir níu holur. Leikur þeirra beggja lagaðist á seinni og léku þær seinni níu holur dagsins á pari. Ragnhildur nældi í tvo fugla og tvo skolla en Valdís í einn fugl og einn skolla.Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir koma næstar á fimm höggum yfir pari en þær fengu báðar tvo fugla í dag og sjö skolla.Sunna Víðisdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari, átti í miklum erfiðleikum í dag og náði sér ekki á strik. Hún lék á fjórum höggum yfir pari fyrri níu og fimm höggum yfir pari á seinni níu.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira