Svíar hætta við í útboði um nýjar danskar herþotur Atli Ísleifsson skrifar 21. júlí 2014 10:50 Til stendur að endurnýja orrustuþotuflota danska hersins árið 2020 og er síðasti dagur til að skila inn tilboði í dag. Vísir/AFP
Sænska félagið Saab, sem framleiðir Gripen orrustuþotur, hefur dregið sig úr í útboðinu um framleiðslu á nýjum herþotum danska hersins. Til stendur að endurnýja orrustuþotuflota danska hersins árið 2020 og er síðasti dagur til að skila inn tilboði í dag. Að sögn Politiken er ástæða þess að Saab hafi hætt við sú að Svíarnir búast fastlega við að danska þingið muni taka tilboði um bandarískar F35-vélar þegar velja skal arftaka þeirra F16-þotna sem nú eru notaðar. Þingið mun taka ákvörðun um nýjar vélar í síðasta lagi næsta sumar. Búist er við að tilboðið hljóði upp á milli 20 og 30 milljarða danskra króna. „F35 hyggst ekki mæta sömu kröfum varðandi danska vinnustaðalöggjöf og hinir þrír þátttakendurnir í útboðinu,“ hefur Politiken eftir sænskum heimildarmanni sínum. Að sögn sama heimildarmanns verða líkur á að tilboði verði tekið miklar, ef fara skal í kostnaðarsaman lokaáfanga útboðsins. Saab hefur ekki talið líkurnar nægjanlega miklar og því dregið sig úr.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira