Kristján Þór vann á Akranesi Anton Ingi Leifsson skrifar 17. ágúst 2014 15:18 Vísir/gsimyndir.net
Kristján Þór Einarsson, úr GKJ, tryggði sér sigur á sjötta stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar, en leikið var á Akranesi. Kristján Þór leiddi mótið alla helgina. Kristján Þór spilaði fínt golf alla helgina og það hélt áfram í dag. Hann hélt mönnunum sem voru í öðru og þriðja sæti alltaf þægilega frá sér og vann á endanum með fimm högga forystu. Um helgina spilaði hann samtals á 213 höggum, þremur undir pari, en Guðmundur Ágúst Kristjánsson, úr GR, kom næstur á samtals 218 höggum, sem gerir tvo yfir pari. Í þriðja sæti var Stefán Már Stefánsson, einnig úr GR, á samtals fjórum höggum yfir pari. Kristján Þór hefur farið á kostum í sumar og vann hann Einvígið á Nesinu á dögunum, en hann vann einnig Íslandsmótið í holukeppni. Hann var þó ekki valinn í íslenska landsliðið sem keppti á EM í Finnlandi í júlí. Með sigrinum styrkti Kristján Þór stöðu sína í efsta sæti stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira