Kristján Þór með vallarmet á Hlíðavelli Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 24. ágúst 2014 11:00 Kristján Þór hefur átt frábært sumar mynd/gsímyndir.net
Kristján Þór Einarsson hefur átt frábært sumar í golfinu hér heima og bætti einni rósinni til viðbótar í hnappagatið í gær þegar hann gerði sér lítið fyrir og setti vallarmet á Hlíðavelli hjá Golfklúbbnum Kili. Það þótti umdeilt þegar Kristján Þór var ekki valinn í landsliðið fyrr í sumar og hefur hann heldur betur svarað því á golfvellinum. Kristján Þór tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni á Hvaleyrinni, gamla heimavelli landsliðsþjálfarans Úlfars Jónssonar. Hann vann einnig einvígið á Nesinu og hefur tryggt sér sigurinn á Eimskipsmótaröðinni þegar eitt mót er enn eftir. Það var svo í gær sem Kristján Þór var meðal þátttakenda á Opna Golfskálamótinu á heimavelli sínum, Hlíðavelli hjá GKJ. Kristján Þór lék á 63 höggum eða níu höggum undir pari sem er nýtt vallarmet á gulum teigum.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira