Golfbolti McIlroy í stuttbuxnavasa áhorfanda Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 13. september 2014 12:30 Rory heldur áfram að skemmta áhorfendum vísir/getty
Rory McIlroy hefur leikið frábært golf á árinu. Hann hefur unnið tvö risamót og tyllt sér á topp heimslistans. Hann sló þó líklega sitt ótrúlegasta högg á árinu af 14. teig á lokamóti FedEx mótaraðarinnar í gær. McIlroy sló upphafshöggið á þessari rúmlega 400 metra löngu par 4 holu í tré og þaðan fór boltinn í vasa á stuttbuxum eins áhorfanda sem stóð undir trénu. Norður-Írinn fékk lausn úr vasa mannsins og sló annað höggið rétt um 18 metra frá holu. Hann fékk par á holuna. Eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan kom atvikið hvorki McIlroy né áhorfandanum úr jafnvægi enda einstakt augnablik sem skemmti bæði besta kylfingi heims sem og öðrum sem urðu vitni að þessu ótrúlega golfhöggi.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira