Ólafur Björn spilaði aftur á pari Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. september 2014 16:18 Ólafur Björn Loftsson. vísir/daníel
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, spilaði þriðja hringinn á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina á pari í dag. Hann lék einnig á pari í gær og tveimur höggum undir á fyrsta degi og er því í heildina á tveimur undir pari eftir þrjá hringi. Hann er einn í fjórtánda sæti þegar örfáir kylfingar eiga eftir að klára í dag. Ólafur Björn er áfram í góðri stöðu, en ríflega tuttugu kylfingar komast áfram af hans velli á 2. stig úrtökumótsins. Hann var ekki nógu stöðugur í dag og gerði ekki nógu vel úr þeim sex fuglum sem hann fékk á hringnum í Frakklandi. Ólafur Björn fékk fjóra skolla til móts við alla fuglana og einn tvöfaldan skolla á 16. holu og spilaði því á parinu. Daninn Martin Overser heldur þriggja högga forystu, en hann er á tólf höggum undir pari.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira