Hafnarfjarðarliðin unnu bæði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. október 2014 21:22 Heimir Óli og félagar unnu dramatískan sigur á Val. Vísir/Anton Brink
Fjórir leikir fóru fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Afturelding er áfram með fullt hús stiga eftir sigur á ÍR í Austurberginu og Eyjamenn höfðu betur gegn Stjörnunni í Eyjum. Í Schenker-höllinni áttust Haukar og Valur við í miklum spennuleik. Leikurinn var jafn framan af, en í stöðunni 8-8 skoruðu Valsmenn þrjú mörk í röð. Gestunum mistókst hins vegar að fylgja þessum góða kafla eftir og Haukarnir enduðu fyrri hálfleikinn á 6-3 kafla. Leikurinn var áfram í járnum í upphafi síðari hálfleiks, þótt Valsarar væru jafnan á undan að skora.Janus Daði Smárason kom Haukum yfir, 24-23, þegar fjórar mínútur voru eftir, en Finnur Ingi Stefánsson jafnaði metin með sínu áttunda marki. Það var síðan Árni Steinn Steinþórsson sem tryggði Haukum sigurinn með marki nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur 25-24, Haukum í vil.Markaskorarar Hauka: Janus Daði Smárason 6, Adam Haukur Baumruk 4, Árni Steinn Steinþórsson 4, Þröstur Þráinsson 3, Einar Pétur Pétursson 3, Jón Þorbjörn Jóhannsson 2, Heimir Óli Heimisson 1, Þórarinn Leví Traustason 1, Arnar Ingi Guðmundsson 1.Markaskorarar Vals: Finnur Ingi Stefánsson 8, Guðmundur Hólmar Helgason 4, Ómar Ingi Magnússon 3, Geir Guðmundsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 2, Vignir Stefánsson 2, Bjartur Guðmundsson 1, Alexander Örn Júlíusson 1, Elvar Friðriksson 1. HK-ingar unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn Fram í síðustu umferð og þeir mættu grimmir til leiks. Eftir fimm mínútna leik var staðan 1-3, HK í vil, en þá tóku Hafnfirðingar heldur betur við sér, skoruðu níu mörk í röð og breyttu stöðunni í 10-3. HK-ingar náðu aðeins að laga stöðuna og minnkuðu muninn í 14-9, en þá tóku FH-ingar aftur við sér, skoruðu fjögur mörk gegn tveimur og leiddu í leikhléi, 18-11. Heimamenn gengu svo endanlega frá leiknum í byrjun seinni hálfleiks. Eftir 40 mínútna leik var staðan 26-15 og eftir það var aðeins spurning hversu stór sigurinn yrði. Svo fór að FH vann með átta mörkum, 36-28, en Hafnfirðingar eru með sjö stig í 3. sæti deildarinnar.Markaskorarar FH: Ragnar Jóhannsson 9, Halldór Ingi Jónasson 6, Magnús Óli Magnússon 5, Benedikt Reynir Kristinsson 4, Ásbjörn Friðriksson 3, Ísak Rafnsson 3, Henrik Bjarnason 3, Hlynur Bjarnason 1, Andri Berg Haraldsson 1, Daníel Matthíasson 1.Markaskorarar HK: Leó Snær Pétursson 7, Andri Þór Helgason 5, Þorgrímur Smári Ólafsson 4, Garðar Svansson 3, Tryggvi Þór Tryggvason 3, Óðinn Þór Ríkharðsson 2, Guðni Már Kristinsson 2, Björn Þórsson Björnsson 1, Aron Gauti Óskarsson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig Golf „Mér finnst hún skipta sér af málum sem koma henni ekki við“ Fótbolti LeBron boðar aðra Ákvörðun Körfubolti Bjargaði lífi mótherja í miðjum leik Fótbolti Sekúndubrot á milli Tomma og Nablans í fyrstu grein Ólympíuleika Extra Sport „Skil ekki hvernig má kýla einhvern í andlitið?“ Íslenski boltinn Metár hjá David Beckham Fótbolti Stórefnilegur og hafnaði níu milljarða króna samningi Sport „Enginn vissi hvað ég var að ganga í gegnum“ Fótbolti Engar leynilegar viðræður í gangi um framtíð Meistaradeildarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Lovísa Thompson kemur aftur inn í íslenska A-landsliðið Sjáðu svakalega vítakeppni þegar frændliðin börðust í bikarnum Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Sjá meira