Bae kláraði dæmið í Kaliforníu 13. október 2014 10:02 Sang-Moon Bae fagnar titlinum í gær. Getty
Spennustigið á lokahring Frys.com mótsins sem kláraðist í nótt var óvenju lítið miðað við lokadag í móti á PGA-mótaröðinni en Suður-Kóreumaðurinn Sang-Moon Bae sigraði mótið örugglega. Bae hafði fjögurra högga forystu fyrir lokahringinn í gær og þrátt fyrir þrjá skolla á seinni níu holunum á lokahringnum sigraði hann mótið með tveimur höggum, á alls 15 höggum undir pari. Sigurinn er hans annar á PGA-mótaröðinni á ferlinum en hann sigraði einnig á Byron Nelson meistaramótinu í fyrra. Í öðru sæti kom Ástralinn Steven Bowditch á 13 höggum undir pari en fimm kylfingar deildu þriðja sætinu á 12 höggum undir, meðal annars Hunter Mahan og Retief Goosen. Næsta mót á PGA-mótaröðinni er Shriners Hospitals mótið en það fer fram um næstu helgi á TPC Summerlin vellinum í Las Vegas.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira