Ben Martin kláraði dæmið í Las Vegas 20. október 2014 12:20 Martin fagnar sigrinum í gær. AP
Ben Martin sigraði á sínu fyrsta móti á PGA-mótaröðinni á ferlinum í gær en hann lék best allra á Shriners mótinu sem fram fór á TPC Summerlin vellinum í Las Vegas. Martin hafði tveggja högga forystu fyrir lokahringinn og framan af leit út fyrir að pressan væri of mikil fyrir þennan 27 ára gamla Bandaríkjamann því þegar að hann kom á 14. holu hafði hann misst niður forystuna eftir að hafa fengið tvo skolla og aðeins einn fugl á hringnum. Hann geymdi þó sín bestu högg fyrir lokaholurnar fjórar sem hann lék á fjórum höggum undir pari en hann fékk meðal annars glæsilegan örn á 15. holu til þess að komast aftur í forystusætið. Martin sigraði á endanum með tveimur höggum á alls 20 höggum undir pari en landi hans Kevin Streelman nældi í annað sætið á 18 höggum undir pari eftir glæsilegan lokahring upp á 65 högg. Fyrir sigurinn fékk Martin rúmlega 130 milljónir króna ásamt því að tryggja þátttökurétt sinn á PGA-mótaröðinni út árið 2017. Sigurvegari síðasta árs, Webb Simpson, varði titilinn vel en varð á endanum að sætta sig við fjórða sætið á 15 höggum undir pari. Næsta mót á mótaröðinni er McGladrey Classic sem fram fer á Seaside vellinum í Georgíufylki en þar á Chris Kirk titil að verja.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira