Pétur sjúkraþjálfari: Strákarnir eru rosalega skemmtilegir Henry Birgir Gunnarsson í Herning skrifar 20. janúar 2014 07:30 Pétur Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson í upphitunarboltanum. Vísir/Daníel
Sjúkraþjálfararnir Pétur Örn Gunnarsson og Elís Þór Rafnsson hafa haft í nógu að snúast á EM enda mannskapurinn ansi laskaður. „Það hefur aldrei verið svona mikið að gera hjá okkur. Við erum sem betur fer tveir núna og vinnan gengur betur fyrir vikið,“ segir Pétur Örn en hann hefur verið með landsliðinu síðan á EM árið 2008. „Dagarnir hjá okkur geta verið langir. Við höfum ekki oft þurft að vinna eftir miðnætti sem betur fer. En við erum mikið að allan daginn. Við fáum frí meðan strákarnir funda en þetta er samt rosalega gaman. Það er ekki hægt að neita því enda strákarnir rosalega skemmtilegir og gaman að vinna með þeim. Þetta er allt þess virði enda erum við ekki hérna út af peningunum. Það er alveg klárt.“ Pétur Örn er ávallt léttur og hress. Hefur tekið virkan þátt í fótboltanum og síðan verið aukamaður þegar kastað er á milli. „Ég er mikill handboltaáhugamaður þó að ég hafi aldrei æft handbolta. Það er mjög gaman að fá að vera með á þessum æfingum. Ég fékk ekkert að vera með í fótboltanum fyrst og var ekki kátur með það. Ég hafði aldrei kastað handbolta af viti fyrr en núna með Guðjóni Val. Það gengur misjafnlega vel hjá mér,“ sagði Pétur og hló við. Hann segir laskaða leikmenn vera að koma til og er ánægður með hvernig hefur gengið hjá honum og Elís að halda mönnum gangandi á mótinu.
EM 2014 karla Mest lesið Logi Geirsson ætlar alla leið í MMA: „Hann peppar mig áfram“ Sport Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Younghoe sparkað burt Sport Svíar vinna Ólympíubronsið 2010: „Fáránlegt að þetta hafi tekið svona langan tíma“ Sport Dagskráin: Borgarslagur í Liverpool, Besta kvenna og margt fleira Sport Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Þrjú rauð spjöld á Sauðárkróki: Tindastóll fer á Laugardalsvöll Fótbolti Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Handbolti Erna Sóley nokkuð frá sínu besta Sport Fleiri fréttir Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda Sjá meira