Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 16:36 Átján ára strákarnir okkar eru að sýna öllum á þessu Evrópumóti í Serbíu að þeir ætla sér að spila um verðlaun. EHF Íslenska átján ára landslið karla í handbolta hélt sigurgöngu sinni áfram á Evrópumótinu í Serbíu í dag þegar keppni hófst í milliriðli.
Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og mætti þarna Króatíu, hinu liðinu sem kom með sér tvö stig inn í milliriðilinn. Það bjuggust því flestir við jöfnum leik sem ekki varð þó raunin. Króatar réðu ekki við stráklinga okkar, ekki frekar en Svartfellingar, Ungverjar eða Svisslendingar. Það er ekki á hverjum degi sem Ísland vinnur Króatíu með átta mörkum í handbolta en það gerðist í 37-29 sigri íslenska liðsins í dag. Íslenska liðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 17-11, komið níu mörkum yfir, 25-16, um miðjan seinni hálfleik og var mest tólf mörkum yfir áður en Króatar löguðu aðeins stöðuna undir lokin. FH-ingurinn Brynjar Narfi Arndal átti stórleik og skoraði ellefu mörk en Haukamaðurinn Freyr Aronsson skoraði níu mörk þar af fjögur úr vítum og Valsarinn Logi Finnsson var með fjögur mörk. FH-ingurinn Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði þrjú mörk eins og Eyjamaðurinn Anton Frans Sigurðsson. Íslenska liðið vann leikina í riðlinum með meira en tíu mörkum að meðaltali og er nú plús 40 í markatölu eftir fyrstu fjóra leiki sína á mótinu. Íslensku strákarnir eru líka öruggir inn í átta liða úrslitin með þessum sigri en seinni leikur þeirra í milliriðli er á móti Portúgal á morgun.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“