Um loftslagsbreytingar Sölvi Jónsson skrifar 11. júní 2014 07:00 Ísinn á suðurpólnum hefur ekki mælst meiri í 30 ár.(1,2) Í ágúst á síðasta ári var ísþekjan á norðurpólnum 29% stærri en í ágúst árið 2012. Samfelld ísþekjan sem þakti norðurpólinn þá svaraði til meira en helmingsins af stærð Evrópu. Fyrir sex árum síðan spáðu vísindamenn því að norðurpóllinn myndi vera orðinn íslaus með öllu sumarið 2013.(3) Samanlögð ísþekja suður og norðurpólsins mælist nú nánast sú sama og hún var fyrir 30 árum síðan.(4) Stærð ísbjarnarstofnsins nálgast sögulegt hámark, telur 20-25 þúsund dýr. Talið er að ísbirnirnir hafi aðeins verið 5-10 þúsund á fimmta og sjötta áratugnum. Ísbirnirnir hafa lifað af tímabil þar sem ísinn á norðurhveli jarðar hvarf með öllu, færðu sig þá upp á fastalandið.(5,6) Spár vísindamanna IPCC gerðu ráð fyrir því að hitastig á jörðinni myndi hækka um 0,25 gráður á áratug. Á síðustu fimmtán árum hefur hitastig á jörðinni aðeins hækkað um 0.06 gráður. Skekkjan í spám vísindamannanna er því meiri en 400%.(7,8) „Hlýnunin” hefur verið mest á norðurhveli jarðar en nú eru semsagt sterkar blikur á lofti með að það ferli sé að ganga tilbaka.(9) Á mörgum svæðum jarðar hefur veður farið kólnandi síðustu fimmtán árin.(10) Það er ekki rétt að það sé samstaða á meðal vísindamanna um að sú litla hlýnun sem hefur orðið á jörðinni (á síðustu öld hækkaði hitastig jarðar um 0,8 gráður(11)) megi rekja til kolefnislosunar mannsins. Í Bandaríkjunum hafa meira en 30 þúsund vísindamenn sett nafn sitt undir yfirlýsingu þar sem kenningunni um hlýnun jarðar af mannavöldum er hafnað.(12) Árið 2007 komst dómstóll í London að þeirri niðurstöðu að níu rangar staðhæfingar væri að finna í mynd Al Gore, „An Inconvenient Truth”. Ein af þessum röngu staðhæfingum er að hækkandi magn koltvísýrings í andrúmslofti hafi verið valdurinn að síðustu fjórum hlýskeiðum á jörðinni. Aukning koltvísýrings í andrúmslofti var afleiðing hlýnunar ekki orsök. Aukning koltvísýrings í andrúmslofti jarðar var ekki mælanleg fyrr en 800-2800 árum eftir að hlýnaði í veðri.(13) Rússneskir vísindamenn spá því að við séum að fara inn í litla ísöld. Þeir telja að hitastig á jörðinni muni falla um 1,5 gráðu til ársins 2050.(14) Þann 12. desember á síðasta ári féll snjór í Egyptalandi í fyrsta skipti í yfir 100 ár.(15) Og vart þarf að rifja upp kuldakastið í Bandaríkjunum eftir áramótin. Árið 1998 féll hitamet á jörðinni (samt kaldara en árin 1921, 1931, 1934 og 1953).(16) Á síðustu 15 árum höfum við semsagt ekki fengið heitara ár en árið 1998 og hitinn á jörðinni hefur vart vaxið um mælanlega stærð þrátt fyrir metlosun á CO2 á árunum 2000-10. Á árunum ca. 950-1250 var hlýskeið á jörðinni og á árunum ca. 1400-1700 fengu jarðarbúar litla ísöld.(17,18) Þannig að hitastig á jörðinni hefur í gegnum tíðina sveiflast upp og niður. Efasemdarmenn um hlýnun jarðar af manna völdum vilja skella skuldinni _á sólina. Þeir segja að það skiptist á kaflar aukinnar (hlýskeið) og minnkaðrar (kuldaskeið) sólvirkni sem standa í 30-40 ár. Kenningin er að minnkuð sólvirkni stuðli að aukinni myndun skýja sem hafi kælandi áhrif á jörðina.(19) Þegar virkni sólar er lítil sjást fáir/engir blettir á sólinni. Þetta er það sem sjónaukar NASA sýna í dag.(20) Ég tel mig síður en svo vera sérfræðing um loftslagsbreytingar og ég er ekki að reyna að afsanna kenninguna um hlýnun jarðar af mannavöldum. Það sem ég er að benda á er að kenningin er komin í nauðvörn og það er margt sem bendir til þess að við stefnum núna í þveröfuga átt. Ef hitastig á jörðinni lækkar þá á það víst að vera ef eitthvað er verra heldur en ef hitastigið hækkar. (Svörtustu spár vísindamannanna í IPCC gera reyndar ráð fyrir því að hitastig á jörðinni hækki um 5-6 gráður til aldamóta sem hefði ansi dramatískar afleiðingar fyrir jarðarbúa).(21) Hér kemur svo síðan sjálfsagt þversögnin finnst einhverjum. Ég er einlægur umhverfisverndarsinni. Ég mæli ekki stóriðjum eða umhverfisspjöllunum sem þær hafa í för með sér bót. Ég mæli ekki taumlausu kjötáti jarðarbúa bót. A.m.k. einn þriðji hluti ræktarlands jarðar er notaður til að rækta skepnufóður (með allri skógareyðingunni sem því fylgir). Nautgriparæktun (og þá er aðallega verið að tala um vindlosun nautgripa) losar meira af „skaðlegum” gróðurhúsalofttegundum heldur en allar samgöngur jarðar.(22,23) En ég mæli því svo sannarlega heldur ekki bót ef það er verið að skattleggja mig og komandi kynslóðir vegna koltvísýringslosunar á fölskum forsendum. (1) Watts, Anthony (2013, 24. okt.). A new record: the most sea ice in Antarctica in 30 years by extent and volume. Watts Up With That? Sótt 1. mars af http://wattsupwiththat.com/2013/10/24/a-new-record-the-most-sea-ice-in-antarctica-in-30-years-by-extent-and-by-volume/ (2) Goddard, Steven (2012, 16 sept.). Antarctic ice area sets another record - NSIDC is silent. Real Science. Sótt 1. mars af http://stevengoddard.wordpress.com/2012/09/16/antarctic-ice-area-sets-another-record-nsidc-is-silent/ (3) Rose, David (2013, 7. sept). And now it"s global COOLING! Return of Arctic ice cap as it grows by 29% in a year. Mail online. Sótt 1. mars af http://www.dailymail.co.uk/news/article-2415191/And-global-COOLING-Return-Arctic-ice-cap-grows-29-year.html (4) Global sea ice area (1979 - present). Sótt 1. mars af http://arctic.atmos.uiuc.edu/cryosphere/IMAGES/global.daily.ice.area.withtrend.jpg (5) Gayathri, Amrutha (2011, 2. ágúst). Polar bear population higher than in 20th century: is something fishy about extinction fears? International Business Times. Sótt 1. mars af http://www.ibtimes.com/polar-bear-population-higher-20th-century-something-fishy-about-extinction-fears-821075 (6) Amstrup, Steven C. (ártal vantar). Movements and population dynamics of polar bears. Alaska Science Center. Sótt 1. mars af http://alaska.usgs.gov/BSR-2002/section8.html (7) Fyfe, John C., Gillet, Nathan P., Zwiers, Francis W. (2013, 28 ágúst). Overestimated global warming over the past 20 years. Nature Climate change (3): 767-769. Sótt 1. mars af http://www.see.ed.ac.uk/~shs/Climate%20change/Climate%20model%20results/over%20estimate.pdf (8) Taylor, James (2013, 26. sept.). As it"s global warming narrative unravels, the IPCC is in damage control mode. Forbes. Sótt 1. mars af http://www.forbes.com/sites/jamestaylor/2013/09/26/as-its-global-warming-narrative-unravels-the-ipcc-is-in-damage-control-mode/ (9) D'Aleco, Joseph (2013, 5. júní). Global warming theory has failed all tests, so alarmists return to the "97% consensus?" hoax. Watts Up With That? Sótt 1. mars af http://wattsupwiththat.com/2013/06/05/global-warming-theory-has-failed-all-tests-so-alarmists-return-to-the-97-consensus-hoax/ (10) RSS global mean surface temperature change: 203 months November 1996 to September 2013. Sótt 1. mars af http://wattsupwiththat.files.wordpress.com/2013/10/clip_image002_thumb8.jpg?w=595&h=320 (11) Easterbrook, Don J. (2013, 29. sept.). Global cooling is here: evidence for predicting global cooling for the next three decades. Global Research. Sótt 1. mars af http://www.globalresearch.ca/global-cooling-is-here/10783 (12) Global warming petition project: 31.487 American scientists have signed this petition, including 9.029 with PhDs. Sótt 1. mars af http://www.petitionproject.org/index.php (13) Monckton, Christopher (2007, 18. okt). 35 inconvenients truths: the errors in Al Gore"s movie. Science & Public Policy Institute. Sótt 1. mars af http://scienceandpublicpolicy.org/monckton/goreerrors.html (14) Gosselin, P. (2013, 5. apríl). Russian scientists warn global temperatures to fall 1,5°C by 2050. Strong doubts about warming. NoTricksZone. Sótt 1. mars af http://notrickszone.com/2013/04/05/russian-scientist-warns-global-temperatures-to-fall-1-5c-by-2050-and-global-cooling-refuges/ (15) Mosbergen, Dominique (2013, 13. des.). Snow falls in Cairo for the first time in more than 100 years. The Huffington Post. Sótt 1. mars af http://www.huffingtonpost.com/2013/12/13/cairo-snow_n_4441049.html (16) Goddard, Steven (2013, 8. jan). The big lie becomes official at NOAA. Real Science. Sótt 1. mars af http://stevengoddard.wordpress.com/2013/01/08/the-big-lie-becomes-official-at-noaa/ (17) Mann, M. E., Zhang, Z., Rutherford, S. o.fl. (2009, 26. nóv.) Global signatures and dynamical origins of the little ice age and medieval climate anomaly. Science 326(5957): 1256-1260. Sótt 1. mars af http://www.meteo.psu.edu/holocene/public_html/shared/articles/MannetalScience09.pdf (18) 2000 years of global temperature. Sótt 1. mars af http://www.drroyspencer.com/library/pics/2000-years-of-global-temperature.jpg (19) Pohanka, Geoffrey (2010). Is there global cooling? - the antitheses of global warming. Is There Global Cooling. Sótt 1. mars af http://isthereglobalcooling.com/ (20) Phillips, Tony (2009, 1. apríl). Deep solar minimum. Nasa Science. Sótt 2. jan af http://science1.nasa.gov/science-news/science-at-nasa/2009/01apr_deepsolarminimum/ (21) Easterbrook, Don J. (2013, 29. sept.). Global cooling is here: evidence for predicting global cooling for the next three decades. Global Research. Sótt 1. mars af http://www.globalresearch.ca/global-cooling-is-here/10783. (22) Steinfel, H. (2006). Livestock"s long shadow: environmental issues and options. Róm, Food and Agriculture Organization of the United Nations (FAO). Sótt 1. mars af http://www.fao.org/docrep/010/a0701e/a0701e00.HTM (23) MEAT THE TRUTH (heimildarmynd). Sótt 1. mars af http://www.youtube.com/watch?v=2uTJsZrX2wI Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar