Frábær sjöþraut Einars Daða | Tíundi á heimslista Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. febrúar 2015 23:49 Einar Daði Lárusson. Vísir/Anton
Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttamaður í ÍR, náði sinni bestu sjöþraut á ferlinum í kvöld er hann náði 5859 stigum á sjöþrautarkeppni í Laugardalshöllinni. Einar Daði er að keppa um að fá boð á EM innanhúss í Prag sem hefst eftir tvær vikur en þrautin í kvöld skilar honum í tíunda sæti heimslistans. Fimmtán bestu sjöþrautarkappar Evrópu fá boð á mótið og eru miklar líkur á að Einar Daði verði einn þeirra eftir árangur kvöldsins. Einar Daði bætti sinn besta árangur um rúmlega 100 stig en best átti hann 5726 stig sem hann náði á Meistaramótinu í fjölþrautum í síðasta mánuði. Hann náði sínum besta árangri í hástökki á ferlinum er hann stökk 2,08 m en þar að auki stökk hann 4,75 m í stangarstökki, hljóp 60 m grindahlaup á 8,15 sekúndum og 1000 m hlaup á 2:46,37 mínútum. Þar að auki hljóp hann 60 m hlaup á 7,15 sekúndum, stökk 7,29 m í langstökki og kastaði 13,31 m í kúluvarpi. Ingi Rúnar Kristinsson keppti einnig í sjöþraut á mótinu og fékk 5339 stig. Hann var einungis sex stigum frá sinni bestu þraut á ferlinum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Féll í yfirlið í miðjum leik Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram „Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Tékki til Njarðvíkur „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Sjá meira